Stofnfundur stuðningshóps fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein í lungum og aðstandendur þess verður haldinn 17. nóvember frá klukkan 17 til 18 í Ráðgjafarþjónustu krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, Reykjavík, fyrstu hæð. Þar mun Hrönn Harðardóttir lungnalæknir fjalla um greiningarferli lungnakrabbameina á Landspítala og Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir segja frá reynslu sinni af því að greinast með lungnakrabbamein.
Ingibjörg greindist með lungnakrabbamein fyrir átta árum og er einn af hvatamönnum að stofnun stuðningshópsins. Hún segir það skipta gífurlegu máli að geta leitað til fólks sem hafi sömu reynslu þegar greiningin kemur og í gegnum meðferðina. "Maður er svo óskaplega einn," segir hún. "Og með þennan sjúkdóm fær maður að heyra það, bæði frá heilbrigðisstarfsfólki og öðrum, að maður geti eiginlega bara sjálfum sér um kennt, þannig að ofan á allt annað situr maður uppi með skömmina."
Fundurinn er öllum opinn og Ingibjörg hvetur sem flesta til að mæta og hrinda af stað öflugu stuðningsstarfi fyrir þá sem greinst hafa með lungnakrabbamein.
-Greinin birtist í Fréttablaðinu þann 15. nóvember. - sjá
hér