Reykleysi

Viltu hætta að reykja?

                                                               
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil aðstoðað fólk við að hætta að reykja með því að standa fyrir námskeiðum, sinna einstaklingsmeðferð og fræðsluerindum í húsi Krabbameinsfélagsins og hjá fyrirtækjum og félagasamtökum. Hægt er að hafa samband í síma 540 1900 eða senda póst á netfangið reykleysi@krabb.is.

Það að hætta að reykja er eitt það besta sem hægt er að gera til að bæta heilsuna. Fagleg ráðgjöf bætir árangur til reykleysis. Það er aldrei of seint að hætta að reykja. Lífslíkur og lífsgæði aukast við að hætta óháð því á hvaða aldri einstaklingur er. Hvað lagast við að hætta að reykja (sjá meðfylgjandi töflu).

Næsta námskeið byrjar 16. janúar 2012.


Í bæklingnum "Hættu fyrir lífið" eru góðar upplýsingar fyrir þá sem eru að hugsa um að hætta að reykja.
 

10.01 2012 - Þriðjudagur

Það er algjör vitleysa að reykja!

Erum við ekki öll sammála um það? Þess vegna hefur Þjóðminjasafn Íslands ákveðið, í samstarfi við Krabbameinsfélagið, Landlæknisembættið og Prentsmiðjuna Odda, að bjóða öllum grunnskólanemendum í 7.-10. bekk að taka þátt í samkeppni um hönnun og gerð á nýju tóbaksvarnarplakati. Samkeppnin er haldin í tilefni af sýningunni Þetta er allt sama tóbakið! sem nú stendur í Horni Þjóðminjasafnsins.
03.01 2012 - Þriðjudagur

Íþróttir og tóbaksnotkun

Þann 27. desember 2011 birti Fréttablaðið grein eftir Reyni Björn Björnsson lækni um íþróttir og tóbaksnotkun.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan ég byrjaði mína knattspyrnuiðkun í kringum 1973-74. Þá var algengt að reykt væri á hliðarlínunni á kappleikjum barna og unglinga og íþróttasvæði voru ekki reyklaus








Skipta um leturstærð


Leit