Réttindi sjúklinga


30.09 2009 - Miðvikudagur

Úrræði í kerfinu þegar fólk greinist með krabbamein

Í þessari samantekt má finna helstu úrræði sem í boði eru fyrir krabbameinssjúklinga hjá Tryggingastofnun ríkisins, félagsþjónustu sveitarfélaga, stéttarfélögum og lífeyrissjóðum. Samantektinni er ætlað að hjálpa fólki til að fá yfirsýn yfir úrræði sem það getur hugsanlega nýtt sér við erfiðar aðstæður.
Vakin er athygli á því að sækja þarf um allar greiðslur og umsóknum þurfa að fylgja læknisvottorð og önnur umbeðin gögn. Eitt grunnvottorð frá lækni vegna umsókna fyrir sama einstakling nægir fyrir flestar bætur hjá TR. Félagsráðgjafar veita sjúklingum og aðstandendur þeirra ráðgjöf og stuðning við að sækja um réttindi og leiðbeina fólki varðandi gögn sem þurfa að fylgja umsóknum.
30.09 2009 - Miðvikudagur

Fólk sem greinist með krabbamein á aldrinum 16-67 ára

Samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993 geta krabbameinssjúklingar á aldrinum 16 - 67 ára átt rétt á neðangreindum fyrirgreiðslum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Sækja þarf um allar bætur til TR.
Upphæðir bóta frá TR miðast við árið 2012.








Skipta um leturstærð


Leit