27.04 2012

Mun lyfjakostnaður sjúklinga aukast við lagabreytingu?

Töluverð umræða hefur verið um hátt lyfjaverð í þjóðfélaginu og mikið verið fjallað um nýtt frumvarp til breytinga á lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. Helsti tilgangur lagabreytinganna mun vera að verja sjúklinga fyrir háum lyfjakostnaði og taka upp einfaldara og réttlátara kerfi þar sem sjúklingum er ekki mismunað eftir sjúkdómum og jafnframt að verja þá sem mest þurfa á lyfjum að halda fyrir háum kostnaði. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um þetta mál eru notendur heilbrigðisþjónustunnar sem þurfa á lyfjum að halda, en margir þeirra óttast að lyfjakostnaður aukist.

Krabbameinsfélag Íslands fékk ofangreindar breytingatillögur til umsagnar á síðasta ári og hefur tvívegis veitt umsagnir um þetta lagafrumvarp. Frumvarpið hefur tekið breytingum og nú er gert ráð fyrir að fjárhæðir verði endurskoðaðar árlega til að hlutfall kostnaðar milli sjúklinga og greiðsluþátttaka sjúkratrygginga haldist að mestu óbreytt milli ára.

Samt sem áður veldur það okkur sem störfum með krabbameinssjúklingum áhyggjum að í frumvarpinu er ekki sett þak á þá upphæð sem sjúklingum er ætlað að greiða fyrir lífsnauðsynleg lyf. Í umsögnum Krabbameinsfélagsins var bent á að ekki sé nógu vel tryggt að kostnaður sjúklinga verði ekki meiri en 45.000 krónur fyrir aldraða og öryrkja og 64.875 krónur fyrir aðra á 12 mánaða tímabili. Samkvæmt frumvarpinu er heimilt að sækja um lyfjaskírteini þegar fólk hefur greitt ofangreindar fjárhæðir en ekki er tryggt að þær heimildir verði samþykktar hjá Sjúkratryggingum Íslands. Það er einnig áhyggjuefni hve auðvelt er að breyta reglugerðinni og hækka greiðsluhlut sjúklinga í lyfjakostnaði, en þessar upphæðir þyrfti að festa í lögum.

Krabbameinsfélagið hefur ítrekað bent á að krabbameinssjúklingar þurfa að greiða háar fjárhæðir fyrir heilbrigðisþjónustu. Má þar m.a. nefna komugjöld til lækna auk greiðslu fyrir fjölmargar rannsóknir. Dæmi eru um að fólk í krabbameinsmeðferð greiði um 200.000 krónur fyrir læknismeðferð og jafnvel enn meira ef það býr utan höfuðborgarsvæðisins. Það er því áhyggjuefni ef kostnaður vegna kaupa á lyfjum bætist við og hækkar greiðslubyrði sjúklinga verulega.

Krabbameinsfélagið leggur áherslu á jafnan rétt allra til heilbrigðisþjónustu og að tryggt sé að tekjulágir einstaklingar hafi einnig öruggt aðgengi að lyfjum og nauðsynlegri þjónustu. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er hætta á að það geti torveldað eða komið í veg fyrir lyfjakaup einhverra sjúklinga úr hópi þeirra tekjulægri.

Grein eftir Evu Ólafsdóttur og Gunnjónu Unu Guðmundsdóttur, félagsráðgjafa hjá Krabbameinsfélagi Íslands sem birtist í Morgunblaðinu 27.4.2012


Ráðgjöf og stuðningur

Ráðgjafarþjónustan
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík

Forstöðumaður: 
Sigrún Lillie Magnúsdóttir

Sími: 540 1900
Gjaldfrjáls sími: 800 4040
8004040@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit