Í krabbameinsmeðferð

Meðan á krabbameðferð stendur 
30.11 2009 - Mánudagur

Húsnæði í boði fyrir fólk utan af landi á meðan á krabbameinsmeðferð stendur

 

Leiga fyrir íbúðir Krabbameinsfélagsins, Rauðarárstíg 33, Reykjavík er 1.600 kr. á sólarhring. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl félagsmanna sinna í íbúðunum. Einnig greiða flest krabbameinsfélög á landsbyggðinni fyrir fólk af sínu félagssvæði. Ef Landspítalinn sendir reikning heim til sjúklings fyrir dvölina í íbúðunum getur viðkomandi farið með reikninginn til krabbameinsfélags í sinni heimabyggð sem aðstoðar við að greiða reikninginn. 

Sótt er um afnot af íbúðunum á móttöku Geisladeildar Landspítalans sími 543 6800

Sjúkrahótelið, Ármúla 9, Rvík., sími 543 6372. Verð á sólarhring með fæði er niðurgreitt af TR og kostar kr. 1.200 fyrir sjúkling og kr. 4.000 fyrir aðstandandann. Ósjúkratryggðir (erlendir ríkisborgarar) greiða kr. 18.000 fyrir sólarhringinn. Flest herbergin eru tveggja manna og þarf beiðni frá lækni. Sum verkalýðsfélög greiða fyrir dvöl sinna félagsmanna á sjúkrahótelinu og einnig hafa sum krabbameinsfélög á landsbyggðinni greitt fyrir fólk á sínu félagssvæði.

 

 

 

 

14.10 2009 - Miðvikudagur

Afsláttarskírteini.

Afsláttarskírteini 

Þeir sem eiga rétt á að fá afsláttarskírteini hjá TR eru: Einstaklingar 18-66 ára sem hafa greitt kr. 31.100 fyrir læknisþjónustu á almanaksárinu.

Aldraðir 70 ára og eldri, þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri, öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og hafa greitt kr. 7.800 á sama almanaksári vegna læknisþjónustu.

Öll börn undir 18 ára aldri í sömu fjölskyldu þegar greiddar hafa verið kr. 9.400 á sama almanaksári. Þeir sem eru búnir að greiða meira en sem nemur hámarksgreiðslunni (31.100 kr.) eiga rétt á afslætti sem nemur 2/3 af kostnaði vegna læknisþjónustu.

Afsláttarskírteinið veitir afslátt af komugjöldum á heilsugæslustöð, til heimilislæknis, vitjun læknis, komu til sérfræðings, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamóttöku og til rannsókna á viðkomandi einstaklingi.

  



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit