Ráðgjafarþjónustan

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er upplýsinga- og stuðningsþjónusta fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og fyrir aðstandendur. 

 

Opið frá kl. 9-16 virka daga á fyrstu hæð í Skógarhlíð 8, Reykjavík. 

Markmið

Markmið Ráðgjafarþjónustunnar er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í lífinu eftir þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur. Í Ráðgjafarþjónustunni getur fólk hitt hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa og fleiri fagaðila. Þar er einnig hægt að hitta fólk sem farið hefur í gegnum krabbameinsmeðferð og læknast. 

í Ráðgjafarþjónustunni er boðið upp á fræðslu, viðtöl, faglega ráðgjöf, sálgæslu, djúpslökun, ýmis námskeið og hagnýtar upplýsingar. Húsnæðið er heimilislegt og þar er hægt er að setjast niður og fá sér hressingu. Þar er einnig aðgengi að tölvu og prentara.

 

 Þjónustan er fólki að kostnaðarlausu. Gjaldlaus símaráðgjöf og símsvari: 8004040.

 

  Tilgangur Ráðgjafarþjónustunnar er að veita fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þeirra upplýsingar, fræðslu, ráðgjöf, stuðning og hvatningu. Markmið þjónustunnar er að aðstoða fólk við að takast á við breyttar aðstæður eftir greiningu krabbameins.

Starfsemi Ráðgjafarþjónustunnar er margþætt. Þar starfa félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingar og fulltrúar stuðningshópa krabbameinssjúklinga tengjast starfseminni. Hlutverk starfsfólks er að aðstoða alla þá sem til Ráðgjafarþjónustunnar leita. Lögð er áhersla á að veita hagnýtar upplýsingar eftir því sem kostur er á og veita aðstoð við að sækja um úrræði og réttindi sem fólk á rétt á. Upplýst er um endurhæfingu og fjárhagsleg og heilsueflandi úrræði.

Í Ráðgjafarþjónustunni er boðið upp á þjónustu fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa. Þar eru haldnir fræðslufyrirlestrar og námskeið og boðin þátttaka í hópastarfi. 
Einstaklingsmiðuð þjónusta felst í viðtölum við einstaklinga og fjölskyldur þeirra og einnig er boðið upp á djúpslökun.

Tvisvar í mánuði eru haldnir fræðslufyrirlestrar í hádeginu. Þeir eru valdir með það að markmiði að auka þekkingu á krabbameini og hvernig best er að takast á við afleiðingar þess á sem uppbyggilegastan hátt. Meginþema fræðslunnar er heilsuefling og að dýpka skilning á aðstæðum krabbameinssjúklinga og fjölskyldna þeirra. 
  
Helstu námskeið eru hugræn atferlismeðferð (HAM) gegn þunglyndi og kvíða, matreiðslunámskeið sem sniðin eru að þörfum fólks sem er með krabbamein, sjálfstyrkingarnámskeið þar sem fólki gefst tækifæri til að efla sig félagslega og fræðsla um bætt útlit í umsjón snyrtifræðinga. Einnig er boðið upp á bridgenámskeið og ýmis fleiri námskeið. 
Sem dæmi um hóptíma má nefna heilsueflandi Qi gong iðkun tvisvar í viku sem byggir upp ónæmiskerfi fólks og innri líffæri.

Mánaðarlega er einnig boðið upp á samvera fyrir ekkjur og ekkla með fræðslu og umræðum sem stjórnað er af presti og hjúkrunarfræðingi.  
 
Fulltrúar stuðningshópa Krabbameinsfélagsins hafa aðsetur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar og eru með viðveru á föstum tímum. Fulltrúar stuðningshópanna ræða við þá sem þess óska, gefa upplýsingar og deila reynslu varðandi hagnýt og tilfinningaleg vandamál sem upp koma.

Einnig veita starfsmenn Ráðgjafarþjónustunnar fólki um allt land þjónustu í gegnum síma og tölvupóst. Ráðgjafarþjónustan er einnig hugsuð sem upplýsingaþjónusta og athvarf fyrir fólk utan af landi sem dvelur í íbúðum Krabbameinsfélagsins við Rauðarárstíg á meðan það er í meðferð á Landspítalanum.

Allir eru velkomnir.

Nánari upplýsingar veita:

Sigrún Lillie Maqgnúsdóttir hjúkrunarfræðingur sími 540 1916 sigrunli@krabb.is

Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur, sími 540 1915, netfang asdisk@krabb.is

Gunnjóna Unu Guðmundsdóttur félagsráðgjafi, sími 540 1912, netfang una@krabb.is

 

 


04.04 2013 - Fimmtudagur

Fyrirlesturinn Tímastjórnun með Thomasi Möller

Þann 22. mars 2013 hélt Thomas Möller fyrirlestur um tímastjórnun í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Hér má sjá fyrirlesturinn sem og glærurnar úr fyrirlestrinum. 
05.02 2013 - Þriðjudagur

Hvað dreymdi þig í nótt?

Valgerður H. Bjarnadóttir hélt erindi þann 23.1.2013 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins um drauma, hlutverk þeirra og eðli.



Ráðgjöf og stuðningur

Ráðgjafarþjónustan
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík

Forstöðumaður: 
Sigrún Lillie Magnúsdóttir

Sími: 540 1900
Gjaldfrjáls sími: 800 4040
8004040@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit