Austurland

Stofnað: 20. apríl 1970.
Félagsmenn: 154.
Þjónustumiðstöðin að Búðareyri 15 á Reyðarfirði, rekin í samvinnu við Krabbameinsfélag Austfjarða, er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11-13. Sími 474 1530, netfang kraus@simnet.is, vefsíða krabb.is/austur 
Starfsmaður: Steinunn Sigurðardóttir. 
       

Stjórn kosin á aðalfundi félagsins 24. apríl 2012

Formaður:   Alfreð Steinar Rafnsson, Dalseli 8, 700 Egilsstöðum, farsími 847 2524   alfred.steinar@gmail.com
Gjaldkeri:   Kristjana Björnsd., Bakkavegi 1, 720 Borgarfirði eystra, farsími 893 5211   kristbj.skima@simnet.is
Ritari:   Jóna Björg Sveinsdóttir, Geitlandi, 720 Borgarfirði eystra, farsími 862 7865   jonasb@ismennt.is
Meðstjórnandi:   Ásdís Sigurjónsdóttir, Stekkjartröð 10, 700 Egilsstöðum, farsími 824 3920   asdiss@simnet.is
Meðstjórnandi:   Karólína S. Ingvarsdóttir, Dalseli 8, 700 Egilsstöðum, farsími 824 3920   kain@mi.is

Starfsemi 2011-2012

Fyrirlestrar. Starfsemin 2011-2012 var með hefðbundnu sniði eins og undanfarin ár, þó segja megi að færri fræðslufundir hafi verið haldnir þetta árið en árið áður. Er það samdóma álit þeirra er sótt hafa þessa fundi að nauðsynlegt verði að halda þeirri fræðslustarfsemi áfram. Eitt helsta vandamál eru fjarlægðir milli byggðakjarna þar sem veður getur hamlað færð, ásamt auknum ferðakostaði. 

Hvíldarhelgin á Eiðum. Að venju héldu Krabbameinsfélögin á Austurlandi sameiginlega árlega hvíldarhelgi á Eiðum fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá allt frá kyrrðarstundum upp í danskennslu og samkvæmisleiki. Kristján Kristjánsson, KK, kom og söng og skemmti í upphafi helgar og einnig flutti Anna Lóa Ólafsdóttir fyrirlestur um hamingjuna og lífið. Þátttakendur lýstu ánægju sinni með dvölina og sögðust snúa endurnærðir heim á leið.

Styrkveitingar og fjáraflanir. Eins og undanfarin ár hefur félagið greitt dvalarkosnað sjúklinga þegar þeir hafa þurft að fara í meðferð til Reykjavíkur. Kostnaður við slíkar ferðir hefur aukist mikið að undanförnu og svo hefur einnig komið upp sú staða að fylgja hefur þurft sjúklingi í slíkar ferðir, kostnaður sem lagst hefur á sjúkling eða aðstandanda eftir aðstæðum. Á síðasta ári greiddi Krabbameinsfélag Austurlands 221.130 kr. meira en það sem aflað var og var það tekið úr varasjóði félagsins. Þegar ljóst var að fjárþörf félagsins var meiri en innkoma í félagsgjöldum, bleiku slaufunni, mottumars, og sölu minningakorta var reynt að fjölga félagsmönnum til mótvægis við aukinn kostnað. Þessi tilraun mistókst og virtist aðalástæða þess vera sú að aðilar sem rætt var við töldu sig þegar félaga þegar þeir samþykktu að gerast velunnarar Krabbameins¬félagsins. Þetta upplifðu líka þeir sjálfboðaliðar sem reyndu að selja vörur fyrir félagið. Eins og öllum þeim sem koma að aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands er ljóst hefur velunnarakerfið valdið vonbrigðum og leiðindum sem finna verður lausn á. Ýmsar lagfæringar fengust þó á fundi með fjármálaráði og aðildar¬félögunum á fundi sem haldinn var í Reykjavík 12. apríl, en betur má ef full sátt á að nást um þessi mál. Í desember sl. tilkynnti Alcoa Fjarðaál báðum krabbameinsfélögunum hér austanlands að það myndi veita styrk, samtals að upphæð 360.000 krónur og greitt yrði út á þessu ári. Mun fjármagn þetta koma sér vel fyrir félögin því ljóst er að eftirspurn í formi styrkja til sjúklinga vegna dvalar í meðferð mun aukast stórlega í náinni framtíð.

Alfreð Steinar Rafnsson.

09.03 2012 - Föstudagur

Þú getur borið fegurstu mottuna.

Dagana 9. – 23. mars munu aðildarfélög Krabbameinsfélagsins selja lyklakippu sem er mótuð eftir „Fegurstu mottunni 2011“. Það var Árni Þór Jóhannesson sem hlaut titilinn í fyrra og nú geta landsmenn fengið sér lyklakippu og borið mottuna allan ársins hring. 
06.10 2011 - Fimmtudagur

Alcoa starfsmenn hlaupa til góðs og lýsa upp hús

Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði tekur mikinn þátt í Bleika slaufu átaki Krabbameinsfélagsins. Þau hafa nú lýst upp Sómastaði, súrálsfæribandið og tvö mastur í rafveitu, austan við verksmiðjuna. Laugardaginn 8. október ætla starfsmenn Fjarðaáls að fara í bleikt boðhlaup. 


Krabbameinsfélag Austfjarða

Þjónustumiðstöð
Búðareyri 15,
Reyðarfirði

Sími: 474 1530
Netfang: kraus@simnet.is
Opnunartími:  Þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11-13

Starfsmaður: 
Steinunn Sigurðardóttir







Skipta um leturstærð


Leit