Suðausturland
Stofnað: 21. apríl 1970 (endurvakið 1. október 2002).
Félagsmenn: 150.
Stjórn:
Formaður: Ester Þorvaldsóttir, Hólabraut 2, 780 Höfn, sími 478 2040
ester@hssa.isGjaldkeri: Ólöf Ólafsdóttir, sími 487 1613
Ritari: Eyrún Axelsdóttir, sími 487 1527
Meðstjórnandi: Ólöf Gísladóttir
Starfsemi 2011-2012
Veittir hafa verið styrkir í vetur til einstaklinga. Einnig greiðum við leigu fyrir krabbameinssjúklinga sem dvelja í íbúðum Krabbameinsfélagsins eða gista á Sjúkrahótelinu meðferðardagana.
Við erum með okkar minningarkort og tökum þátt í almennri haustfjáröflun á vegum Krabbameinsfélags Íslands.
Áfram er samstarf á milli knattspyrnudeildar ungmennafélagsins Sindra, Krabbameinsfélags Suðausturlands og forvarnarsjóðs Landsbanka Íslands á Hornafirði með áherslu á forvarnir og fræðslu.
Meistaraflokkur karla sá um sölu á skeggpinnunum í mars, sem gekk þokkalega. Meistaraflokkur kvenna kemur til með að sjá um sölu á bleiku slaufunni í haust.
Í mars var haldið karlakvöld í samstarfi við Kiwanisklúbb Hornafjarðar þar sem Guðjón Haraldsson þvagfæraskurðlæknir hélt fyrirlestur um karlaheilsu og krabbamein. Um 110 karlmenn áttu þar góða kvöldstund og var mikil ánægja á meðal þeirra með frábæran fyrirlestur og skýrar og greinagóðar upplýsingar.
Ester Þorvaldsdóttir.