Ísafjörður og norðanverðir Vestfirðir

Krabbameinsfélagið Sigurvon

Stofnað: 4. nóvember 2001. Starfssvæði félagsins eru norðanverðir Vestfirðir. Tilgangur félagsins er að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini.
Kennitala: 470102-4540.
Félagsmenn: Um 200.
Þjónustumiðstöð: Pollgötu 4, Ísafirði, sími 456 5650, opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11-13. Þar er veitt ráðgöf og hægt að nálgast fræðsluefni sem tengist sjúkdómnum. 
Starfsmaður: Sigríður Ragna Jóhannsdóttir. 
Stuðningshópur: Vinir í von.
Netfang: sigurvon@snerpa.is, vefsíða http://svon.blogspot.com

Hér má finna bækling um hagnýtar upplýsingar til þeirra er greinst hafa með krabbamein og aðstandenda þeirra, gefinn út af Sigurvon. . 

Stjórn kosin á aðalfundi 2011:

Formaður:   Sigurður Ólafsson, Hlíðarvegi 45, 400 Ísafirði, farsími 897 5502   bii@simnet.is
Gjaldkeri:   Guðfinna Sigurjónsdóttir, farsími 861 4659 gfm@simnet.is   
Ritari:   Oddný Birgisdóttir, farsími 898 0711 ob@ov.is
Meðstjórnandi:   Auður H. Ólafsdóttir, farsími 692 3580 audgudm@simnet.is
Meðstjórnandi: Heiðrún Björnsdóttir, farsími 869 8286, heidrunbjorns@gmail.com

Starfsemin 2011-2012

Sigurvon bárust margar veglegar gjafir á árinu í formi styrkja frá ýmsum aðilum og fyrirtækjum og eigum við mörgum margt að þakka, en höfum jafnframt notið þess að geta gefið gjafirnar áfram ýmist í formi beinna styrkja eða óbeinna. Félagið veitti nokkrum einstaklingum styrki fjárhagslega og styrkti einnig nokkur önnur góð málefni. Sigurvon er enn þeirrar gæfu aðnjótandi að geta boðið félagsmönnum sínum upp á að borga að fullu gistingarkostnað þegar þeir njóta meðferðar utanbæjar og óskandi að það verði hægt sem lengst. Samverustundir hafa gengið vel í ár og hittast Vinir í Von annan hvern laugardag og fyrsta hvern þriðjudag í mánuði.

Vefsíða félagsins hefur verið virk og uppfærð um leið og fréttir berast, einnig hefur vefur BB (Bæjarins Besta, bæjarblaðið) styrkt félagið mjög vel og auglýst starf þess og alla viðburði félaginu að kostnaðarlausu. Sigurvon er á Facebook og allar fréttir settar þar inn jafnóðum. 

Stjórnarfundir eru haldnir mánaðarlega og oftar ef þörf þykir og eru þeir allir ritaðir í dag til upplýsinga fyrir þá er á eftir koma og eru fundargerðir sendar öllum stjórnarmönnum. Aðalfundur Sigurvonar fór fram 22. nóvember 2011 og tókst mjög vel, mæting var góð og að loknum aðalfundarstörfum var kaffi í boði Vina í Von og Sparisjóðs Vestfirðinga.

Landsbankinn og Boltafélag Ísafjarðar undirrituðu styrktarsamning til tveggja ára sem skiptist á milli yngri flokka félagsins og meistaraflokks. Landsbankinn mun þó í samræmi við stefnu sína afsala sér auglýsingum á búningum BÍ. Í stað þess valdi BÍ að merki Krabbameinsfélagsins Sigurvonar myndi prýða búninga félagsins næstu ár. Landsbankinn mun að auki styrkja Sigurvon með styrk að upphæð 500.000 krónur. 

Ferðaþjónustan í Arnardal hélt upp á miðsumarnætur í Arnardal 24. og 25. júní. Meðal annars var farin kvöldganga frá Súðavík yfir í Arnardal. Þátttökugjald rann óskipt til Sigurvonar. 

Góð mæting var í Göngum saman í september. Mættu um 40 göngugarpar, konur, karlar og börn. Göngu-garpar fengu svart buff við upphaf göngu og hressingu að göngu lokinni, snúða og vínarbrauð frá Gamla bakaríinu og drykki frá Vífilfelli. 

Hvunndagshetjurnar Lóa Ara og Júlía rafvirki fengu fyrstu bleiku slaufurnar á Vestfjörðum í október. Skrifstofan var böðuð bleiku ljósu að utan í október. 

Ísfirðingurinn Pétur Geir Helgason gaf út ljóðabókina Sólrúnir. Bókina tileinkar hann minningu eiginkonu sinnar, Óskar Norðfjörð Óskarsdóttur sem lést í janúar 2008, og ánafnaði Krabbameinsfélaginu Sigurvon hluta ágóðans. 

Vel var mætt á fyrirlestur 5. nóvember á Hótel Ísafirði, í tilefni af 10 ára afmæli Sigurvonar. Boðið var upp á súpu í hádeginu og þökkum við góðar móttökur. Fyrirlesari var Lára G. Sigurðardóttir læknir hjá Krabba¬meinsfélaginu.

Vinir í Von hafa unnið að því að gera upp herbergi á Sjúkrahúsinu fyrir krabbameinssjúklinga. Er verið að safna fyrir innanstokksmunum, hljómtækjum, diskum, myndböndum, gluggatjöldum o.fl.

Sigurvon hefur misst húsnæðið tímabundið. Gert er ráð fyrir að takist að opna skrifstofuna á ný 1. september 2012. Starfsmaður hefur sagt upp störfum og hættir 1. júní og leitar Sigurvon því að nýjum starfsmanni. 

Ingibjörg Snorradóttir Hagalín.

26.06 2012 - Þriðjudagur

Ljóðabók til styrktar Sigurvon

Laugardaginn 30. júní mun Pétur Geir Helgason árita ljóðabók sína Sólrúnir í Vestfirsku Versluninni frá 12:00 -15:00, eða á meðan lager endist, bókin kostar 2.000 krónur. Einnig geta þeir, sem þegar hafa keypt bókina, fengið hana áritaða. Bókina tileinkar hann minningu eiginkonu sinnar Óskar Norðfjörð Óskarsdóttur sem lést í janúar 2008 en ánafnar Krabbameinsfélaginu Sigurvon á Ísafirði hluta ágóðans. 


Sigurvon

Þjónustumiðstöð
Pollgötu 4,
Ísafirði

Sími: 456 5650

Opnunartími:
Þriðjudaga og miðvikudag kl. 10-12 og fimmtudaga kl. 11-13

Netfang: sigurvon@snerpa.is
Vefsíða: http://svon.blogspot.com/
Facebooksíða: https://www.facebook.com/group.php?gid=393098958972&ref=ts

Starfsmaður:
Ingibjörg Snorradóttir Hagalín







Skipta um leturstærð


Leit