Suður-Þingeyjarsýsla

Stofnað: 22. ágúst 1968. 
Félagsmenn: 400.
Stuðningshópur: Birta.

Stjórn kosin 2011

Formaður: Guðrún Árný Guðmundsdóttir, Baldursbrekku 10, 640 Húsavík, farsími 8607735 gudruna@heilthing.is 
Ritari: Jóhanna Björnsdóttir, Sólbrekku 7, 640 Húsavík, farsími 862 8792 j.bjornsd@gmail.com 
Gjaldkeri: Edda Björg Sverrisdóttir, Laugarholti 7, 640 Húsavík, farsími 864 4134 eddab@heilthing.is
Meðstjórnandi: Erla Sigurðardóttir, Höfðavegi 22, 640 Húsavík, farsími 867 2669 hofdavegur22@simnet.is 
Meðstjórnandi: Ingigerður Arnljótsdóttir, Gautlöndum, 660 Mývatni, farsími 847 9646 ingigerdur@spthin.is

Starfsemi 2011-2012


Krabbameinsfélag Suður-Þingeyinga er rekið sem styrktarfélag og starfar við hlið Birtu, stuðningshóps einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Markmið félagsins er að styrkja málefni sem tengjast heilsu og forvörnum gegn krabbameini, ásamt því að styrkja einstaklinga í Suður-Þingeyjarsýslu sem greinst hafa með krabbamein, með ýmsum hætti. Félagið styrkir sjúklinga sem þurfa að dvelja vegna krabbameinsmeðferðar í Reykjavík með greiðslu á leigu íbúða. Félagið tekur þátt í sölu á merkjum Krabbameinsfélags Íslands sem seld eru á landsvísu og þeim átökum sem Krabbameinsfélag Íslands hefur staðið fyrir. Félagið sér um sölu á minningarkortum Krabbameinsfélagsins. Fyrirtæki og einstaklingar á svæði Krabbameinsfélags Suður-Þingeyinga styrkja félagið myndarlega ár hvert. 

Félagið hefur gefið fjármagn til Styrktarfélags Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Í gegnum það félag hefur runnið fé til kaupa á ýmsum búnaði, meðal annars ómtæki, ristilskoðunartæki, hjúkrunarrúmi, loftdýnu, snúningsdýnu, lyfjadælu, vökvadælum og lyftistólum. 

Félagið stóð fyrir bleiku kvöldi í október 2011 og bláu kvöldi í mars 2012. Þátttaka var með ágætum. Þar voru haldnir hinir ýmsu fyrirlestrar sem miðuðu allir að því að upplýsa fólk um krabbamein, hvað er í boði eftir að fólk greinist, hvernig við getum bætt heilsu okkar og minnkað líkurnar á að fá krabbamein. Þemað í ár á bleika kvöldinu var næring og heilsa. Elín Harðardóttir, næringarráðgjafi fjallaði um mataræði krabbameinsveikra og Þórunn Steinsdóttir frá Máttur matarins fjallaði um mataræði og forvarnir gegn krabbameini. Einnig fengum við góðar reynslusögur og völdum hvunndagshetjur Þingeyjarsýslna. Í Bláa boðinu kom Hrefna Regína Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari með fyrirlesturinn „Hreyfing og heilsa“, Ásgeir Böðvarsson, lyf- og meltingarlæknir hélt fyrirlesturinn „Ristilkrabbamein – er skimun viturleg?“ og síðan fengum við Friðfinn Hermannsson til að segja frá sinni reynslu „Bjartsýni er skylda – reynslusaga krabba¬meinssjúklings“. 

Guðrún Árný Guðmundsdóttir.

 











Skipta um leturstærð


Leit