27.09 2010

Skógarganga í Hafnarfirði

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu fimmtudaginn 30. september kl. 19:30. Safnast verður saman við Gróðarstöðina Þöll við Kaldársselsveg og þaðan verður gengið um skógarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Við upphaf göngunnar flytur formaður Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar, Þóra Hrönn Njálsdóttir,  stutt ávarp og að því loknu mun Steinar Björgvinsson, skógfræðingur, vera með leiðsögn um skóginn og flytja stutta hugleiðingu um gildi skógarins í eflingu lýðheilsu. Þá mun Sigurður Pálsson, rithöfundur, flytja frumort ljóð. Gert er ráð fyrir að skógargangan taki um eina klukkustund og að göngu lokinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti í  húsakynnum Þallar. Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hvetja sem flesta til að taka þátt í göngunni og  njóta útiveru í fallegu umhverfi skógarins.  








Skipta um leturstærð


Leit