Akureyri og nágrenni

Stofnað: 21. nóvember 1952.
Félagsmenn: 1.429.
Þjónustumiðstöðin á Glerárgötu 24, 600 Akureyri, opin mánudaga og þriðjudaga
kl. 13-16. Viðtalstímar við hjúkrunarfræðing eftir samkomulagi. 
Sími 461 1470. Netfang kaon@simnet.is. 
Framkvæmdastjóri: Þorbjörg Ingvadóttir. 
Stuðningshópur: Norðankraftur.

Stjórn kosin á aðalfundi 7. maí 2012:

Formaður:   Hlíf Guðmundsdóttir, Illugastöðum, 601 Akureyri, sími 462 2699   hlif@est.is
Varaformaður:   Friðrik Vagn Guðjónsson, Dalsgerði 4a, 600 Akureyri, sími 462 2519   fridrikv@fsa.is
Gjaldkeri:   Jón Þ. Óskarsson, Illugastöðum, 601 Akureyri, sími 462 2699   hlif@est.is
Ritari:   Klara Arnbjörnsdóttir, Ólafsvegi 34, 625 Ólafsfirði, sími 466 2266   
Meðstjórnandi:  Anna Ólafsdóttir, sími 862 0478 annao@internet.is 
Meðstjórnandi:   Guðbjörg Antonsdóttir, Skíðabraut 17, 620 Dalvík, sími 466 1241   gudbjorga@gmail.com
Meðstjórnandi:   Hólmfríður Kristjánsdóttir, Eyrarlandsvegi 20, 600 Akureyri, sími 462 1582   holmfridur@fsa.is
Meðstjórnandi:   Lilja Sverrisdóttir, Gullbrekku, 601 Akureyri, sími 463 1511   gullbrekka@nett.is
Meðstjórnandi:   Margrét Steingrímsdóttir, Hjallalundi 7g, 600 Akureyri, farsími 896 5351   maggams@akmennt.is
Meðstjórnandi:   Sigríður Jónsdóttir, Bergi, Svalbarðsströnd, 601 Akureyri, sími 462 1458   marin46@simnet.is

Starfsemi 2011

Skrifstofa. Skrifstofa félagsins er opin mánudaga og þriðjudaga frá kl. 13 til 16, auk þess sem boðið er upp á viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofunni. Starfsmenn eru: Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri í 50% starfi, Jóhanna Júlíusdóttir í 20% starfi frá 1. febrúar 2011 og Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari í 20% starfi en hún var ráðin var til félagsins í febrúar. Starfshlutfall Jóhönnu hafði áður verið 40%.

Fundir. Stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis hélt sjö bókaða fundi. Aðalfundur var haldinn 5. maí 2011 í húsnæði félagsins. Engar breytingar urðu á stjórn. Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari var með erindi um mikilvægi endurhæfingar fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og sagði frá hugmyndum sínum um þá starfsemi sem hún er að móta í samstarfi við félagið. Fulltrúar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis á aðalfundi Krabbameinsfélags Íslands í maí 2011voru Friðrik Vagn Guðjónsson og Margrét Steingrímsdóttir en auk þess sátu starfsmenn félagsins fundinn. Þegar aðalfundi lauk var vinnufundur með þjóðfundarsniði um „krabbameinsáætlun“. Síðan var farið í móttöku á Bessastaði í boði forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar í tilefni 60 ára afmælis Krabbameinsfélags Íslands. Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna þjónustumiðstöðva Krabbameinsfélagsins sem haldnir voru hjá Ráðgjafarþjónustu félagsins. Formannafundur Krabbameinsfélagsins var haldinn á Akranesi 8. október 2011 og fulltrúi félagsins var Friðrik Vagn Guðjónsson. Starfsmenn sóttu fundi með ýmsum aðilum á árinu. Má þar t.d. nefna fundi með líknar- og stuðningsteymi FSA, fundi með starfsmönnum og formönnum stéttarfélaga á félagssvæðinu, kynningarfundi með ýmsum aðilum til að kynna endurhæfinguna sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari er með og fundir hjá fjáröflunarráði Krabbameinsfélagsins sem Þorbjörg Ingvadóttir situr í sem fulltrúi aðildarfélaga á landsbyggðinni.

Námskeið fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra var haldið í húsnæði félagsins að Glerárgötu 24. Það hófst 3. maí og því lauk 24. maí. Eftirtaldir fyrirlesarar voru með okkur að þessu sinni: Friðbjörn Sigurðsson krabbameinslæknir: Krabbamein, lækningaúrræði, meðferð. Þorbjörg Jónsdóttir verkja¬hjúkrunarfræðingur: Verkir og verkjameðferð. Valgerður Bjarnadóttir félagsráðgjafi: Sjálfstyrking. Elín S. Harðardóttir næringarfræðingur: Hollt mataræði, bjargráð í næringarvanda. Guðrún Eggertsdóttir sjúkrahúsprestur: Sálgæsla. María Björk Ingvadóttir félagsráðgjafi: Félagsleg réttindi o.fl. Ingvar Þóroddsson endurhæfingarlæknir: Krabbamein og endurhæfing. Námskeiðið var þátttakendum að kostnaðarlausu og fékk félagið sérstakan verkefnisstyrk frá Krabbameinsfélagi Íslands upp í kostnaðinn við þetta verkefni. Skráðir þátttakendur á námskeiðið voru 20 að þessu sinni og voru flestir frá Akureyri, en einnig einstaklingar búsettir annars staðar á félagssvæðinu.

Fræðsla. Starfsmenn hafa aðstoðað hjúkrunarnema, sjúkraliða og aðra námsmenn bæði með formlegum hætti þ.e. viðtölum og upplýsingagjöf ýmiss konar, auk þess sem „brjóstavestið“ hefur verið lánað í tengslum við fræðslu sem skólahjúkrunarfræðingar hafa verið með í skólum. Þann 5. október var Ólöf Sigurðardóttir læknir með erindi á vegum félagsins á Hótel KEA, um D-vítamín og áhrif þess á heilsu.

Endurhæfing. Í febrúar 2011 var ráðinn sjúkraþjálfari í 20% starf hjá félaginu. Tilgangurinn er að styðja við og efla endurhæfingu/sjúkraþjálfun krabbameinsgreindra á félagssvæðinu. Í boði er m.a. vatnsleikfimi, styrktarþjálfun, hugleiðsla og slökun, auk þess sem veitt er einstaklingsmeðferð og ráðgjöf.

Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík. Kostnaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis vegna dvalar sjúklinga í íbúðum félagsins á Rauðarárstíg og á Sjúkrahótelinu hefur aukist jafnt og þétt. Árið 2010 voru gistinætur sem félagið greiddi 541, en á árinu 2011 voru þær 730. Fram til október 2010 greiddi félagið þessa reikninga að fullu og eina skilyrðið hefur verið að viðkomandi greiði (eða hafi greitt) árgjald til félagsins. Á stjórnarfundi í september 2010 var tekin sú ákvörðun að greiða 50% hlut í reikningum vegna dvalar í íbúðunum. Starfsmenn hafa átt viðræður við forsvarsmenn sjúkrasjóða flestra stéttarfélaga á félagssvæðini og nokkrir sjóðanna koma til móts við sína félagsmenn og taka að hluta til þátt í kostnaði vegna dvalarinnar.

Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga. Sífell vaxandi ásókn er í það sem kalla mætti almennan stuðning og ráðgjöf og þegar skoðaðar eru tölur frá 2009 sést að þá eru skráð 84 slík viðtöl. Árið 2010 eru þau 139 en árið 2011 eru þau orðin 289. Viðtöl í síma eru ekki talin með. Rétt þykir að geta þess að skrifstofan er opin að meðaltali átta klukkustundir á viku og lokað er yfir sumarleyfistíma frá miðjum júní og fram undir lok ágúst.

Norðankraftur/Keramikloftið. Norðankraftur hefur ekki verið með formlega fundi, en á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu þar sem er kaffi á könnunni og boðið upp á leiðsögn í alls konar föndri. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, ullarþæfingu o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel sótt. Í lok ársins ákvað stjórnin að styðja við þessa mikilvægu grasrótarstarfsemi með fjárframlagi að upphæð 200.000 kr. þar sem tenging við félagið hefur frá upphafi verið sterk og sú starfsemi sem þarna er, mjög mikilvæg að mati stjórnarinnar. Þegar ljóst var að félagið yrði með kynningu í Bleika boðinu í Hofi höfðum við samband við hópinn sem hittist á „Loftinu“ og könnuðum hvort þær væru til í að búa til Bleika engla sem yrðu til sölu um kvöldið. Það var brugðist við því eins og skot og búnir til keramikenglar í tveimur stærðum sem seldust mjög vel. Í athugun er að í framtíðinni verði búnir til bláir englar sem hægt er að kaupa og andvirðið rennur óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Bleikur október. Bleikt boð var haldið í Hofi á Akureyri 26. október að frumkvæði Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur. Um leið og við fréttum af þessu höfðum við samband við hana og fengum að vera með kynningu á félaginu þetta kvöld. Við létum útbúa kynningarveggspjöld og lítil spjöld með upplýsingum um félagið og endurhæfingarþjónustuna sem Sigrún er með. Mjög fjölmennt var í Hofi og frábært að fá tækifæri til að kynna þá starfsemi sem fram fer á vegum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, auk þess sem fjölmargir skráðu sig í félagið. Samkomuhúsið á Akureyri, Bakkakirkja í Öxnadal og Miðgarðakirkja í Grímsey voru lýstar upp í bleikum lit í október og sáu Ólafur Tr. Kjartansson og Sigurður Ólafsson rafvirkjar hjá Ljósgjafanum um framkvæmdina.

Samhjálp kvenna. Margrét Steingrímsdóttir meðstjórnandi í stjórn er í forsvari fyrir Samhjálparkonur á Akureyri og hefur sótt námskeið á vegum Samhjálpar kvenna sem gera henni kleift að hitta konur sem greinast með brjóstakrabbamein og spjalla við þær.

Stómasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

Líf og loft eru samtök lungnasjúklinga. Þau hafa fundað reglulega í húsnæði okkar.

Fjáraflanir. Í stuttu máli má segja að skipting tekna sé þannig að félagsgjöldin skila okkur um 40%, framlag Krabbameinsfélags Íslands í launakostnaði um 30% og minningakort um 20%. Afgangurinn, 10%, eru gjafir og velvilji fyrirtækja og einstaklinga. Félagið tók þátt í sölu skeggpinna í tengslum við Mottumars og seldust 1.200 stk. að þessu sinni miðað við 1.930 stk. árið áður. Þetta skilað félaginu 600.000 kr. í tekjur, þar sem félagið fékk nú 500 kr. af hverjum seldum pinna. Þetta er mun minna en árið áður þegar félagið fékk tæplega 1,4 millj. kr. en þá var hagnaðinum skipt á annan hátt. Ólafur Tr. Kjartansson hefur séð um alla skipulagningu og umsjón með þessari fjáröflun okkar.

Styrkir og gjafir. Félaginu hafa borist styrkir frá fjölmörgum aðilum á síðasta ári og eru öll þessi framlög til félagsins eru þökkuð af alhug.

Húsnæði. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Um er að ræða tvö herbergi og lítinn sal sem rúmar u.þ.b. 20-25 manns í sæti. Þessi aðstaða er mjög góð og nýtist salurinn vel fyrir þá fjölbreyttu starfsemi sem fer fram á vegum félagsins, bæði fundi, námskeið og nú einnig jóga, hugleiðslu og slökun sem Sigrún sjúkraþjálfari hjá félaginu sér um. Í húsnæði félagsins er herbergi með svefnaðstöðu og hvíldarstól auk lítillar setustofu þar sem er sjónvarp og vídeótæki. Þessi aðstaða hefur verið notuð af einstaklingum sem koma utan af landi til lyfjagjafar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og/eða aðstandendum þeirra og hefur verið þeim að kostnaðarlausu.

Þorbjörg Ingvadóttir.


03.04 2012 - Þriðjudagur

Velheppnað Mottuboð á Akureyri

Fimmtudagskvöldið síðasta stóð Klúbbur Matreiðslumeistar á Norðurlandi í samstarfi við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis að Mottuboði í Hofi. Klúbbmeðlimir buðu upp glæsilegt 20 rétta smáréttahlaðborð Fjölbreytt skemmtiatriði voru á dagskránni undir veislustjórns Sigurvins Fílsins Jónssonar. Uppboð var á listmunum frá Norðlenskum listamönnum og safnaðist 830 þúsund . Einnig var fyrsta uppboð á hana á Íslandi, sem uppboðshaldarinn Siggi Gumm nældi sér í. 
09.03 2012 - Föstudagur

Þú getur borið fegurstu mottuna.

Dagana 9. – 23. mars munu aðildarfélög Krabbameinsfélagsins selja lyklakippu sem er mótuð eftir „Fegurstu mottunni 2011“. Það var Árni Þór Jóhannesson sem hlaut titilinn í fyrra og nú geta landsmenn fengið sér lyklakippu og borið mottuna allan ársins hring. 


Krabbameinsfélag Akureyris og nágrennis

Þjónustumiðstöð
Glerárgötu 24,
600 Akureyri

Sími: 461 1470
Netfang: kaon@simnet.is
Opnunartími:
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 14-17. Viðtalstímar við hjúkrunarfræðing eftir samkomulagi

Framkvæmdastjóri:
Þorbjörg Ingvadóttir
Hjúkrunarfræðingur:
Jóhanna Júlíusdóttir







Skipta um leturstærð


Leit