Akranes og nágrenni

Stofnað: 9. febrúar 1969.
Félagsmenn: 320.
Stuðningshópur:  Elja, stuðningshópur Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis, Kirkjubraut 40, Akranesi. Upplýsingar í síma 431 5115 eða 865 1774.

 

Stjórn kosin á aðalfundi í maí 2010:

Formaður:   Steinunn Eva Þórðardóttir, Heiðargerði 14, 300 Akranesi,  8931562 steva@fva.is
Ritari:   Katrín Edda Snjólaugsdóttir, Vesturgötu 73, 300 Akranesi,   8622373 
Meðstjórnandi:   Daníel Sigurðsson, 300 Akranesi, 6152082 dannisig@isl.is
Meðstjórnandi:   Hrefna Rún Ákadóttir.
Meðstjórnandi:   Rannveig Gylfadóttir, Esjubraut 16, Akranesi, 6968475 rannsy69@gmail.com

Starfsemi 2010-2011

Skrifstofa félagsins er opin tvisvar í viku og þangað geta allir leitað sem þess þurfa eða vilja. Jóhanna Kristófersdóttir er starfsmaður okkar og hefur mikla og góða reynslu þannig að þangað er gott að leita. Á síðasta starfsári héldum við níu stjórnarfundi, fundir eru haldnir fyrsta mánudag í mánuði yfir vetrarmánuðina. Starfsárið hefur gengið mjög vel. Félagsmönnum hefur fjölgað undanfarið og þökkum við það góðum velvilja bæjarbúa á Akranesi. Auk þess hafa nokkur fyrirtæki á svæðinu styrkt okkur en við sendum markvisst beiðnir um styrkveitingu. Tilgangur félagsins er að styðja og styrkja þá sem greinast með krabbamein og reyna að greiða götu þeirra á sem flestan hátt. Veittir voru nokkrir styrkir til endurhæfingar krabbameinsgreindra og einnig greiðum við leigu á íbúð fyrir þá sem eru í krabbameinsmeðferð.

Fjáraflanir.

Í september fór fram hin árlega fjáröflun aðildarfélaganna og að þessu sinni seldum við litlar skyndihjálpartöskur merktar félaginu okkar. Skagamenn tóku þessari nýbreytni vel og studdu vel við bakið á okkur með því að kaupa af okkur.
Bleika slaufan. Októbermánuður var bleikur eins og síðustu ár til þess að vekja athygli á brjóstakrabbameini. Hefð er fyrir því að lýsa með bleikum ljósum upp byggingar eða aðra merka staði og að þessu sinni var það sjómaðurinn á Akratorgi sem baðaður var bleiku ljósi. Félagið opnaði sölu bleiku slaufunar með því að heiðra einn félagsmann (konu) sem okkur fannst hafa staðið sig einstaklega vel í baráttunni gegn krabbameini. Það var Elín Sigurbjörnsdóttir ljósmóðir og fyrrverandi formaður félagsins sem var heiðruð að þessu sinni.

Í vetur hefur krabbameinssjúkum staðið til boða að leita til heilsugæslunnar á Akranesi og fá viðtalstíma hjá Rannveigu Gylfadóttur hjúkrunarfræðingi á heilsugæslustöð Akraness. Rannveig hefur sérmenntað sig í krabbameinshjúkrun og býður auk þess handleiðslu þar sem hugræn atferlismeðferð er notuð til að bæta líðan krabbameinssjúkra.

Félagið hélt jóganámskeið frá hausti og fram að jólum. Námskeiðið var vel sótt og er að verða einn af föstu liðunum í starfi félagsins.

Mottumars.

Marsmánuð tileinkuðum við karlmönnum eins og gert er á landsvísu. Haldnir voru fræðslufundir um karla og krabbamein fyrir starfsmenn stóriðju og félagið kynnt um leið. Einnig var haldinn stór fræðslufundur á sal Fjölbrautaskóla Vesturlands sem tileinkaður var karlmönnum. Þar hélt Ragnheiður Alfreðsdóttir fræðsluerindi um ristilkrabbamein og Ágúst Kristinn Steinarrsson, útivistar- og fjallagarpur miðlaði reynslu sinni af því að greinast með krabbamein, ná góðum bata og lifa fjölbreyttu og heilbrigðu lífi.
Stjórn félagsins og makar þeirra stóðu svo vaktina um miðjan mars og seldu „mottur“ á öllum helstu stöðum bæjarins. Líkt og árið áður tóku Skagamenn vel í þessa fjáröflun og studdu okkur dyggilega. Margir karlmenn á Akranesi voru kappsfullir í að safna sem veglegustu mottunni og auk þess að safna áheitum fyrir Krabbameinsfélagið voru á nokkrum stöðum vinnustöðum verðlaun í boði fyrir mestu mottuna.

Minningarkort

Minningarkort til styrktar félaginu eru afgreidd í versluninni Módel og á skrifstofunni. Ef haft er samband símleiðis við skrifstofuna er hægt að óska eftir að fá sendan greiðsluseðil. Brúðarkort/tækifæriskort. Við fengum listakonu til að teikna og hanna fyrir okkur tækifæriskort til styrktar félaginu. Kortin eru teiknuð af Arndísi Lilju Guðmundsdóttur og gaf hún félaginu vinnu sína við kortin. Kortin eru komin í sölu hjá versluninni Módel og versluninni Bjargi á Akranesi. Kortin kosta einungis 400 krónur og rennur allur ágóði, óskiptur, til félagsins.

Félagið vill þakka bæjarbúum Akraness fyrir einstakan velvilja í sinn garð.

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir.

 

 








Skipta um leturstærð


Leit