Stómasamtök Íslands

Stómasamtök Íslands voru stofnuð til að styðja og leiðbeina einstaklingum sem að gengist hafa undir stómaaðgerðir þ.e ristilstóma (colostomy), garnastóma (ileostomy),þvagstóma (urostomy) svo og garnapoka (J-pouch) eða nýblöðruaðgerð. Stóma, garnapoki eða nýblaðra eru ekki sjúkdómar heldur afleiðing nokkurra sjúkdóma, fæðingargalla eða jafnvel slyss. Helstu sjúkdómarnir eru krabbamein í ristli og/eða endaþarmi, krabbamein og sjúkdómar í þvagfærum og bólgusjúkdómarnir sáraristilsbólga (Colitis Ulcerosa) og Crohns sem leggjast á ristil og meltingarveg.   


Stofndagur: 16. október 1980. 
Félagsmenn: 300.
Netfang: stoma@stoma.is 
Vefsíða: www.stoma.is

Stjórn kosin á aðalfundi 2011: 

Formaður: Jón Þorkelsson, Miðvangi 121, 220 Hafnarfirði, farsími 696 4395, jon@hyggir.is
Varaformaður: Unnur B. Árnadóttir unnur.b.arnadottir@reykjavik.is
Ritari:  Þorleifur Gíslason
Meðstjórnandi: Ágúst Kristján Steinarrsson
Meðstjórnandi: Inger Rós Jónsdóttir

Starfsemi 2011-2012


Starfsárið 2011-2012 var nokkuð líflegt hjá félaginu. Almennir félagsfundir voru haldnir fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði frá október til apríl að janúarmánuði undanskildum. Almennur fundur var haldinn á Akureyri í maí. Aðalfundur félagsins var síðan haldinn í maí eins og lög félagsins segja til um. Að auki hittust ungir stómaþegar nokkrum sinnum óformlega yfir árið.

Innlent samstarf. Stjórnarmenn sóttu fundi í nefndum og ráðum innan Krabbameinsfélags Íslands eftir því sem efni og ástæður gáfu tilefni til. Einnig á formaður sæti í fjáröflunarráði. Fulltrúi félagsins á síðan sæti í aðalstjórn Öryrkjabandalagins og sótti þar fundi reglulega auk þess sem sem þrír fulltrúar samtakanna sóttu aðalfund bandalagsins. Haldnir voru sameiginlegir fundir með CCU-samtökunum og einnig vorum við gestgjafar á örráðstefnu hjá Krabbameinsfélaginu í samvinnu við Ristilfélagið og tókst það mjög vel.

Erlent samstarf. Norrænn formanna fundur Stómasamtaka (NOA) var haldinn í Osló í um miðjan september. Fundinn sóttu tveir fulltrúar okkar auk um 10 fulltrúa frá systursamtökum okkar í Skandinavíu. Aðalmál fundarins var skipulagning á norrænni ráðstefnu sem haldin verður í Þrándheimi í lok ágúst. Ein sending af afskrifuðum stómavarningi fóru í gegnum Danmörku (COPA) á leið til Úkraínu. Formaður samtakanna var kjörinn í stjórn Evrópusamtakanna, EOA, og tók þátt í stjórnarstörfum. Einnig hafði hann frumkvæði að gerð veggspjalds sem má líta á sem framhald af sundplakati stómasamtakanna. Ungliðar tóku þátt í námskeiðum hjá norsku samtökunum eftir nokkurt hlé og er það mikið fagnaðarefni.

Útgáfumál. Fréttablað Stómasamtakanna var gefið út samkvæmt venju, kom út fimm sinnum og er sem fyrr undir ritstjórn Sigurðar Jóns Ólafssonar. Fréttabréfin er einnig að finna á pdf-formi á heimasíðu samtakanna, stoma.is. Vefsíða félagsins tók breytingum til hins betra á árinu en betur má ef duga skal í þeim efnum og er það ætlun stjórnar samtakanna að verja meiri tíma og ef til vill fjármunum til þess verkefnis.

Almennt. Í lok starfsársins voru félagsmenn um 300 talsins, flestir á höfuðborgarsvæðinu en einnig er stór hópur virkur á Eyjafjarðarsvæðinu. Fjárhagur félagsins er ágætur í lok starfsársins. Ýmislegt er í bígerð hjá félaginu til þess að reyna að renna fleiri stoðum undir tekjuöflun þess en mjög erfitt er um þessar mundir að fá styrki til starfseminnar.

Jón Þorkelsson.
  

Ýmis fræðsla

19.03 2012 - Mánudagur

Örráðstefna um ristilinn var vel sótt

Þann 15. mars 2012 hélt Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins, Stómasamtök Íslands og Ristilfélagið ráðstefnu um ristilinn í samstarfi við Roche, Icepharma og Coloplast. Ráðstefnan var mjög vel sótt og voru viðstaddir ánægðir með ráðstefnuna. 
13.03 2012 - Þriðjudagur

Getur þú haft áhrif? Forvörn er fyrirhyggja

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands stendur fyrir örráðstefnu um ristilinn þann 15. mars nk. í samstarfi við Ristilfélagið, Stómasamtök Íslands og með stuðningi Icepharma, Coloplast og Roche.

Á örráðstefnunni mun Sjöfn Kristjánsdóttir meltingarsérfræðingur fjalla um ristilkrabbamein og forvarnir. Þórunn Steinsdóttir lögfræðingur og áhugakona um heilbrigt mataræði og forvarnir gegn krabbameini fjallar um hvernig máttur matarins hefur áhrif á líf okkar. Ágúst Kristján Steinarrsson  segir frá  reynslu sinni af því að greinast með bólgusjúkdóm og krabbamein. Jón Þorkelsson formaður Stómasamtakanna fjallar um lífsbjörgina að fá stóma. Fundarstjóri er Eiríkur G. Stephensen þekktur sem annar tveggja í  Hundur í óskilum.








Skipta um leturstærð


Leit