Starfsemi 2010-2011

Stofunfundur félagsins var 30. júní 2009. Þar mættu um 60 manns og var mikill hugur í fólki. Á stofnfundinum var samþykkt að sækja um aðild að Krabbameinsfélagi Íslands. Umsóknin var tekin fyrir á aðalfundiKrabbameinsfélagi Íslands8. maí 2010 og samþykkt.

Stjón félagsins hefur haldið fundi annan miðvikudag í mánuði. Við höfðum opið hús fyrir félagsmenn en í ljós kom að það er ekkimikil ásókn í slíka þjónustu. Félagið er til staðar fyrir þá sem vilja og vinnur ötullega að hagsmunum félagsmanna, í samræmi við lög félagsins. Í því sambandi má nefna að eitt helsta baráttumál félagsins er að hafin verði skimun fyrir sjúkdómnum.

Málefni Ristilfélagsins hafa verið kynnt ráðherrum heilbrigðismála. Á fundunum voru dregnar fram staðreyndir um sjúkdóminn þ.m.t. nýgengi og dánartölur.Var einnig rætt um skimun, kosti og galla.Meistararitgerð Kristínar Skúladóttur við Háskólann á Bifröst hefur óspart verið notuð en hún heitir; Ristilkrabbamein, réttlætir kostnaður við meðferð skimun? Ritgerðin er án efa besta samantekt um þann kostnað sem hlýst af ristilkrabbameini. Við höldum áfram að fræða ráðamenn um sjúkdóminn og reynum að opna augu þeirra fyrir því að ódýrara er að leggja fjármuni í forvarnir með skimun vegna þess kostnaðar sem fellur til við meðferð sjúkdómsins.

Sumarið 2010 var unnið að gerð fræðsluþáttar um ristilkrabbamein.Mun slíkt fræðslumyndband vera ómetanlegt þegar kemur að því að fræða almenning um þennan alvarlega sjúkdóm. Páll Kristinn Pálsson, kvikmyndagerðarmaður, hefur haft veg og vanda af gerð þáttarins.Stjórnarmenn Ristilfélagsins hafa tekið virkan þátt í gerð þáttarins.

Nemendur Endurmenntunar HÍ fengu það verkefni að vinna að stefnumótun fyrir Ristilfélagið. Var verkefnið vel unnið og mun stjórn félagsins án efa hafa skýrsluna til hliðsjónar við störf sín á komandi misserum.

Magnea Guðmundsdóttir.


Ristilfélagið

Ristilfélagið
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900

Formaður:
Magnea Guðmundsdóttir
Sími: 849 28246
Kennitala:. 610809-0650

Reikningsnúmer: 0101-26-610809.







Skipta um leturstærð


Leit