Krabbameinsfélagið Framför

Stofndagur: 12. febrúar 2007. 
Félagsmenn: 25.
Vefsíða: framfor.is

Markmið

Markmið Krabbameinsfélagsins Framfarar er að efla rannsóknir á krabbameini í blöðruhálskirtli og styðja í hvívetna baráttuna gegn því. Tilgangi sínum hyggst félagið einkum ná með því að:

  • Stofna og reka sjóð til þess að efla rannsóknir á krabbameini í blöðruhálskirtli og þeim þáttum sem geta orsakað meinið
  • Fræða félagsmenn og almenning um meinið og varnir gegn því
  • Stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta og skyldra greina í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð meinsins

Stjórn

Formaður: Guðmundur Örn Jóhannsson, farsími 862 0537, framfor@framfor.is 
Gjaldkeri: Hinrik Greipsson, farsími 892 3355 hinrik.greipsson@slr.stjr.is 
Meðstjórnandi: Einar Benediktsson 
Meðstjórnandi: Hrafn Pálsson
Meðstjórnandi: Jón G. Ingvason,farsími 852 0220  

Starfsemi 2011-2012

  1. Pöntuðum bláar slaufur og settum þær í box og bjóðum til sölu á bifreiðaverkstæðum og sjúkrahúsum.
  2. Létum útbúa bréf sem sent er til allra karla sem verða 50 ára á árinu þar sem vakin er athygli á blöðruhálskrabbameini og mönnum bent á að láta athuga sig ef þeir finna breytingar. Stefnt að því að gera þetta á hverju ári.
  3. Markvissar úthringingar þar sem við söfnum félögum. Markmiðið er að ná í 1.000 félaga fyrir haustið.
  4. Heimasíða endurbætt.
  5. Reynt að safna styrkjum hjá fyrirtækjum en hætt var við það þar sem of mikið áreiti var á fyrirtæki, Mottumars og Blái naglinn.
  6. Tekið á móti fyrirspurnum frá nýgreindum og þeim sem nýkomnir voru úr meðferð og þeim komið í samband við karlmenn sem farið hafa í gegnum þessa lífsreynslu og gátu gefið góð ráð. Fundum fyrir þörf karla til að spjalla við annan einstakling í einrúmi.
  7. Útbjuggum aðstöðu að Suðurlandsbraut 6, skrifstofa og fundarherbergi þar sem karlmenn geta komið saman.
  8. Ráðstefna í haust, fyrirlesarar kynntir síðar.
  9. Safnað fyrir nýjum línuhraðli (geislatæki), styrkir sóttir til útgerðar. Þegar liggja fyrir velyrði fyrir 20 milljónum.

Ýmist fræðsluefni

23.02 2012 - Fimmtudagur

Yfirlýsing vegna PSA-mælinga og krabbameins í blöðruhálskirtli

Landlæknir hefur í dag gefið út yfirlýsingu þess efnis að ekki sé mælt með því að nota mælingu á PSA-mótefni í blóði til að skima eftir krabbameini í blöðruhálskirtli.

Er yfirlýsing þessi samin í samráði við sérfræðinga í heimilislækningum, krabbameinslækningum og þvagfæraskurðlækningum. Jafnframt er yfirlýsingin í samræmi við ráðleggingar frá Krabbameinsfélagi Íslands. 

16.02 2011 - Miðvikudagur

Upplýsingafundur fyrir nýgreinda með blöðruhálskirtilskrabbamein

Framför: Rabbfundur fyrir nýgreinda með blöðruhálskirtilskrabbamein. Fulltrúar frá Framför, Þráinn Þorvaldsson og Hinrik Greipsson segja frá reynslu sinni og svara spurningum. Karlmenn nýgreindir með blöðruhálskiritlskrabbamein og makar þeirra eru velkomnir. Allar nánari upplýsingar hjá Ragnheiði tölvupóstur ragnalf@krabb.is. Tækifæri fyriri þá sem eru nýgreindir með blöðruhálskirtilskrabbamein að hitta aðra sem hafa gengið í gengum þá reynslu að greinast.

Fundurinn er haldinn í húsnæði Ráðgjafaþjónustunnar, Skógarhlíð 8, fyrstu hæð milli klukkan 17 og 18.









Skipta um leturstærð


Leit