01.12 2009

Bætt aðstaða til krabbameinsmeðferðar á Austurlandi

Sjúkrahúsið á Neskaupstað hefur fengið berkjuspeglunartæki og lyfjablöndunarskáp að gjöf og við það mun aðstaða til greiningar og meðferð krabbameins á Austurlandi stórbatna. Krabbameinsfélag Austfjarða gaf berkjuspeglunartækið en Hrafnhildur Grímsdóttir og Jóhann Sæberg, sem bæði hafa glímt við krabbamein, söfnuðu fyrir lyfjablöndunarskápnum sem kostaði á fjórðu milljón króna. Í skápnum er hægt að blanda krabbameinslyf og ónæmisbælandi lyf.

Blaðið Austurglugginn hefur eftir Birni Magnússyni forstöðulækni sjúkrahússins að ár hvert séu 50-100 sjúklingar greindir með krabbamein eða meðhöndlaðiðr á sjúkrahúsinu og mikilvægt sé að geta veitt sem mesta lyfjameðferð austanlands þó að meðferðinni sé stýrt frá Landspítalanum.

 

 










Skipta um leturstærð


Leit