Hinn 20. október 1987 var haldinn fundur í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 og fólki boðið að skrá sig í samtökin og leggja þeim lið. Á fundinn komu 170 manns. Það voru krabbameinssjúklingar sem vildu leita stuðnings frá öðrum sem reynt höfðu hið sama og miðla af eigin reynslu, svo og aðstandendur krabbameinssjúklinga og velunnarar sem vildu styðja málefnið. Formlegur stofnfundur var síðan haldinn 20. febrúar 1988 og fyrsta stjórnin kosin. Á stofnfundinum voru félagar orðnir 250.
Styrkur hefur síðan haldið fundi einu sinni í mánuði á tímabilinu frá september til maí og fengið ýmsa góða fyrirlesara. Auk þess hafa samtökin gengist fyrir hugleiðslunámskeiðum, farið í gönguferðir, haft spilakvöld og fleira.
Einn helsti hvatamaður að stofnun samtakanna var Óskar Kjartansson. Ólafía Jónsdóttir var formaður fyrsta árið en síðan hefur Steinunn Friðriksdóttir verið formaður Styrks.
Styrkur er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands.
Tilgangur samtakanna er:
1. Að veita krabbameinssjúklingum og aðstandendum þeirra stuðning og efla samhjálp þeirra.
2. Að opna umræður um krabbamein og minnka fordóma gagnvart þessum sjúkdómum.
3. Að vinna að sameiginlegum baráttumálum, t.d. aðstöðu til endurhæfingar, bæði andlegrar og líkamlegrar.
Fullt nafn:
Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Stofndagur: 20. október 1987. Félagsmenn: 400. Eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands. Skrifstofa í Skógarhlíð 8 í Reykjavík er opin á fimmtudögum kl. 13.00 til 15.00, sími 540 1900, farsími 896 5808. Opið hús og fræðslufundir eru í Skógarhlíð 8 í Reykjavík annan þriðjudag í hverjum mánuði á veturna, kl. 20.
Kennitala: 710889-1479. Reikningsnúmer: 0101-26-158881.
Netfang: styrkur@krabb.is Vefsíða: www.krabb.is/styrkur