Samhjálp kvenna verður með fræðslufund (opið hús) í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsins, 4. hæð,
þriðjudaginn 16. mars 2010 kl. 20.00.
Dr. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur ræðir um svefn og svefnleysi.
Eiríkur hefur starfað á Landspítalanum í rúma þrjá áratugi og er prófessor í sálfræði við læknadeild Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað mikið um svefn, streitu, slökun, fælni, kvíða o.fl. og oft rætt um þessi málefni hjá stuðningshópum Krabbameinsfélagsins.
Veitingar. Takið með ykkur gesti, maka, ættingja eða vini!
Stjórnin.