Opið hús
Samhjálp kvenna verður með fræðslufund (opið hús)
í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsins,
þriðjudaginn 16. febrúar 2010 kl. 20.00.
Dagskrá:
Ásta Valdimarsdóttir flytur erindi: Hláturjóga. Auðveld aðferð til að létta lífið og draga úr streitu og líkamlegri vanlíðan.
Hláturjóga er aðferð sem þróuð er af indverska lækninum dr. Madan Kataria.
Í hláturklúbbi er hlegið í hópi, án tilefnis, án þess að brandarar séu sagðir eða fyndnar sögur. Við köllum hláturinn fram með æfingum og þegar við horfumst í augu verður hláturinn fljótt eðlilegur. Hláturjóga er sambland hláturæfinga og jógaöndunar. Það byggist á þeirri vísindalegu staðreynd að hvort sem
hlegið er vegna ytra áreitis eða af einskærri ákvörðun bregst líkaminn
eins við og jákvæð áhrif á hann verða þau sömu.
Veitingar. Takið með ykkur gesti, maka, ættingja eða vini!
Nýir liðsmenn óskast.
Óskað er eftir sjálfboðaliðum sem hafa greinst með brjóstakrabbamein og eru tilbúnir að styðja konur sem hafa farið í aðgerð, að miðla af eigin reynslu og að stuðla að bættri þjónustu við sjúklinga. Sjálfboðaliðanámskeið er ráðgert í lok febrúar. Hafið samband við Samhjálp kvenna á netfang samhjalp@krabb.is eða í síma 898 1712.
Stjórnin.