16.02 2010

Náttúrulyf og náttúruvörur I

kl. 17.00-18.30: Náttúrulyf og náttúruvörur I: Vilborg Halldórsdóttir lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun fjallar á 2ja daga námskeiði um náttúrulyf og náttúruvörur. Skráning ragnaalf@krabb.is. Nánari upplýsingar hjá Unu 540 1912.

Þriðjudaginn 16. febrúar:
Farið verður yfir helstu grunnhugtök í lyfjafræði sem gagnlegt er að þekkja við lestur greina og annars efnis um náttúrulyf, náttúruvörur og fæðubótarefni. Ennfremur verður fjallað um helstu neysluform sem notuð eru sem og mismunandi reglugerðir er átt geta við hverju sinni. Loks verður fjallað um útbreiðslu notkunar, markhópa og tengda þætti

Þriðjudaginn 23. febrúar:
Farið verður yfir þætti er lúta að öryggi notkunar náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna og hvaða atriði þarf að hafa í huga við lestur greina og auglýsinga varðandi málefnið. Í lokin verða skoðuð dæmi með áðurnefnda þætti í huga.

Það er æskilegt að þátttakendur á seinna kvöldinu hafi verið með á fyrra kvöldinu eða þekki grundvallarþætti í lyfjafræði þar sem efni seinna kvöldsins byggir á þáttum frá því fyrra.
Hvatt er till umræðna og spurninga á meðan fyrirlestrum stendur.

Öllum opið án endurgjalds









Skipta um leturstærð


Leit