Máling um brjóstakrabbamein, sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærkvöldi, tókst mjög vel. Flutt voru þrjú erindi þar sem athyglinni var beint að málefnum fjölskyldna þeirra sem greinast með sjúkdóminn. Áheyrendur voru á þriðja hundrað. Málingið var haldið á vegum Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar, Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Samhjálpar kvenna, sem jafnframt minntist 30 ára starfsafmælis.
Í lok málþingsins voru fimm einstaklingar sæmdir gullmerki Samhjálpar kvenna, Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, sem kom að undirbúningi stofnunar samtakanna, Lovísa Einarsdóttir sem hefur skipulagt leikfimi fyrir Samhjálparkonur í mörg ár, Helgi Sigurðsson prófessor, Lilja Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur og Þorvaldur Jónsson skurðlæknir, en þau hafa öll reynst þeim konum vel sem farið hafa í meðferð vegna brjóstakrabbameins.

Mynd:
Helgi Sigurðsson, Lilja Jónasdóttir, Vigdís Finnbogadóttir, Lovísa Einarsdóttir og Þorvaldur Jónsson.