27.10 2009 - Þriðjudagur

Málþing um brjóstakrabbamein. Góður árangur - En hvernig líður fjölskyldunni?

verður haldið þriðjudaginn 27. október 2009 kl. 20:00 - 22:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur við Tjörnina.

 

Dagskrá:

Vanlíðan fólks með krabbamein – mat og meðferð - Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Með lífið að láni - Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur.

Lífsreynsla - Hjónin Anna Sigríður og Jón Ólafur.

Húðflúrtæki - Gjafabréf afhent fulltrúa Landspítalans.

Gullmerki - Afhending heiðursviðurkenninga í tilefni af 30 ára afmæli Samhjálpar kvenna.

Tónlist - Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar flytja lög og ljóð eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni.

Fundarstjóri: Jórunn Frímannsdóttir borgarfulltrúi.

Málþingið, sem er öllum opið, er hluti af árveknisátaki um brjóstakrabbamein þar sem frætt er um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um brjóstamyndatöku.

Málþingið er haldið á vegum Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags Reykjavíkur.

 






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit