Samhjálp kvenna, samtök til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabbamein.
Stofnár: 1979 (sem formlegt félag sjálfboðaliða 2001). Formlegir félagsmenn eru um 50, þar af 40 sjálfboðaliðar í heimsóknaþjónustu, en um 640 fá fundarboð. Eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands. Formaður er Guðrún Sigurjónsdóttir.

Skrifstofa í Skógarhlíð 8 í Reykjavík er opin á þriðjudögum kl. 14.30 til 16.30, símar 540 1911 og 898 1712. Opið hús og fræðslufundir eru í Skógarhlíð 8 í Reykjavík þriðja þriðjudag í hverjum mánuði á veturna, kl. 20. Samtökin hafa gefið út nokkur fræðslurit.

Netfang: samhjalp@krabb.is Vefsíða: www.samhjalpkvenna.org

Áhugaverðar síður:

 

 

04.05 2010 - Þriðjudagur

Aðalfundur Samhjálpar kvenna

Aðalfundur Samhjálpar kvenna verður  í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsins, 4. hæð, þriðjudaginn 4. maí 2010 kl. 17.00.

Dagskrá:

1. Venjuleg aðalfundarstörf.

2. Önnur mál.

Stjórnin.

Þær konur sem ætla að koma á aðalfund eru beðnar að tilkynna þátttöku í síma 898 1712 eða á netfang samhjalp@krabb.is

27.04 2010 - Þriðjudagur

Opið hús hjá Samhjálp kvenna: Ingibjörg Pétursdóttir iðjuþjálfi

Samhjálp kvenna verður með opið hús í Skógarhlíð 8, húsi Krabbameinsfélagsins, 4. hæð, þriðjudaginn 27. apríl 2010 kl. 20.00.

Dagskrá:

Ingibjörg Pétursdóttir iðjuþjálfi flytur erindi: „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt“

Vortískan í nærfatnaði og baðfatnaði. Sýning á vegum Eirbergs.

Vöfflukaffi. Takið með ykkur gesti, maka, ættingja eða vini!

Stjórnin.






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit