Á vormánuðum 2009 héldu var haldin ráðstefna á vegum Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar undir yfirskriftinn „Forvörn er fyrirhyggja“.  Meðal annarra er þar héldu fyrirlestur voru Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir og Skúli Skúlason, er miðlaði af reynslu sinni sem sjúklingur.  Í framhaldi af ráðstefnunni hófu þeir undirbúning að stofnun félagsins ásamt Kristínu Skúladóttir er þá var að skrifa masters ritgerð við Viðskiptaháskólann að Bifröst um kostnað þjóðfélagsins af ristilkrabbameinum.

Hinn 30. júní 2009 var stofnfundur félagsins haldinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8.  Á fundinn mættu um 80 manns og skráðu sig flestir sem stofnfélagar. Ristilfélagið hefur sótt um að verða eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands. Magnea Guðmundsdóttir er fyrsti formaður félagsins (sími 849 2824).

Tilgangur samtakanna er:
• að vinna að hagsmunum þeirra sem greinst hafa með sjúkdóminn og kynningu á málefnum þeirra.
• að stuðla að fræðslustarfsemi og miðlun upplýsinga til sjúklinga, aðstandenda,  annarra velunnara og almennings í samstarfi við krabbameinsfélögin og aðra.
• að efla samstarf við heilbrigðisstarfsfólk, heilbrigðisstofnanir, sem og önnur félagasamtök sem láta sig varða heilbrigði og velferð þeirra er greinast með sjúkdóminn.
• að hvetja til rannsókna á sjúkdómnum og orsökum hans.
• að stofna til samskipta við sambærileg samtök erlendis.
• að beita sér fyrir því að hafin verði leit að ristil- og endaþarmskrabbameini á byrjunarstigi.

Fullt nafn: Ristilfélagið. Stofndagur: 30. júní 2009. Félagsmenn: 65. Hefur sótt um að verða eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands.
Kennitala: 610809-0650. Reikningsnúmer: 0101-26-610809. Vefsíða: www.krabb.is/ristill   

 

 

 

 

 


11.11 2009 - Miðvikudagur

Skimun við ristilkrabbameini

Opið hús hjá Ristilfélaginu miðvikudaginn 11. nóvember nk. kl. 20 í Skógarhlíð 8. fyrstu hæð.

Kristín Skúladóttir hjúkrunarfræðingur kynnir meistararitgerð sína sem fjallar um skimun við ristilkrabbameini, kostnað, ávinning og fleira.

Létt spjall og kaffi.

Allir velkomnir

 






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit