Markmið Krabbameinsfélagsins Framfarar er að efla rannsóknir á krabbameini í blöðruhálskirtli og styðja í hvívetna baráttuna gegn því. Tilgangi sínum hyggst félagið einkum ná með því að:
- stofna og reka sjóð til þess að efla rannsóknir á krabbameini í blöðruhálskirtli og þeim þáttum sem geta orsakað meinið
- fræða félagsmenn og almenning um meinið og varnir gegn því
- stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta og skyldra greina í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð meinsins
Félagið er aðildarfélag í Krabbameinsfélagi Íslands
Annar aðalfundur félagsins var haldinn 13. mars 2008 kl. 17:00 að Skógarhlíð 8, Reykjavík í húsi Krabbameinsfélags Íslands.
Í stjórn félagsins sitja nú: Formaður Oddur Benediktsson, gjaldkeri Hinrik Greipsson, ritari Jón G Ingvason. Meðstjórnendur Einar Benediktsson og Haukur Lárus Hauksson. Varamenn Guðmundur Ásgeirsson og Hrafn Pálsson. Skoðendur Gunnar Zoega og Ólafur H Nilsson og Marías Þ Guðmundsson varaskoðandi.
Félagið var stofnað 12. febrúar 2007 og fékk aðild að Krabbameinsfélagi Íslands á aðalfundi 4. maí 2007.
Formaður: Oddur Benediktsson, sími 899 3317, netfang oddur@hi.is
Gjaldkeri: Hinrik Greipsson, sími 892 3355, netfang hinrik.greipsson@sjr.stjr.is.
Upplýsingar í síma 540 1900.
Sérstök vefsíða:
framfor.is