Félög sem vinna að málefnum krabbameinssjúkra eru ekki öll innan Krabbameinsfélags Íslands. Við reynum að hafa tengla á sem flesta aðila en viljum gjarnan fá upplýsingar ef eitthvað vantar.

Einstök brjóst
Einstök brjóst er fjáröflunarverkefni sem er hugsað fyrst og fremst til að styrkja gott málefni. Hugmyndin gengur í grófum dráttum út á að tengja saman listræna framsetningu konubrjóstsins, vekja athygli á málefninuog opna á víðsýni almennings um brjóstið.

Göngum saman
Allir eru velkomnir að gerast félagar í Göngum saman. Helsti tilgangur félagsins er að safna fé til grunnrannsókna á krabbameini í brjóstum.

Ljósið
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.

Styrktarfélag Krabbameinssjúkra barna
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Markmiðið með stofnun félagsins var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega.  Til að byrja með hafði félagið ekki mikið bolmagn til framkvæmda en úr rættist með stórri landssöfnun 1993. Þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem félagsmenn SKB geta sótt um fjárstyrk úr.






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit