26.10 2010

Góð stemmning í Bleika boðinu

Föstudaginn 22. október síðastliðinn bauð Krabbameinsfélag Íslands 1000 konum á konukvöld í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík. Tilgangurinn var að eiga góða og skemmtilega kvöldstund en ekki síst að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum.

Háskólinn í Reykjavík var baðaður bleiku ljósi jafnt innan sem utan, heilsuboðorð Krabbameinsfélagsins var varpað á svalir skólans ásamt nöfnum allra styrktar- og stuðningsaðila (sjá myndir hér). 

„Við opnuðum húsið klukkan 20 með fordrykk og léttum veitingum en þónokkrar konur voru þegar þá komnar inn því spennan var svo mikil,“ sagði Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Krabbameinsfélagsins, brosandi. „Monika Abendroth spilaði yndislega tónlist á hörpu og skapaði þannig þægilega stemmningu“. 

Fjölbreytt dagskrá með fjölda landsfrægra listamanna, svo sem tónlistarfólki og dönsurum, tók síðan við. Vox Feminae ásamt Stúlknakór Reykjavíkur söng og Jónsi, Jón Jósep Snæbjörnsson, tók undir en hann ásamt Rikku, Friðriku Hjördísi Geirsdóttur, stýrði veislunni. Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, bauð gesti velkomna og þakkaði öllum þeim stuðnings- og styrktaraðilum sem komu að boðinu en án þeirra hefði boðið ekki getað orðið að veruleika. Jón Jónsson söng og spilaði á gítar og svo tók við sirkusatriði frá Sirkus Sóley þar sem liðugar stelpur dönsuðu í silkiborðum fyrir ofan gesti Bleika boðsins. 

Tískusýning um tuttugu íslenskra hönnuða var næst á dagskrá; Andersen&Lauth, Birna, Blik, Diza by Alprjón, Farmers Market, Forynja, Gust, Hanna Felting, JBJ Design, Kiosk, Luca Art Design, María Lovísa, Mundi Vondi, My Beautiful Raven, Nostrum, Rosa Design, Royal Extreme, Skaparinn og Stella Bára Design. Hljómsveitin Lifun steig næst á svið og svo spruttu fram dansarar í Bollywood-dansi og skemmtu viðstöddum. 

Bleika boðið er ókeypis en fjáröflun kvöldsins felst í sölu á happdrættismiðum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Um 30 vinningar voru í boði og voru vinningshafar að sjálfsögðu hæstánægðir þegar númer þeirra voru kölluð upp. Lokaatriði kvöldsins var síðan listamenn úr Buddy Holly sýningunni sem stigu á svið og fengu gesti til að dilla mjöðmunum. Um viðburðastjórn sá Dagmar Haraldsdóttir hjá Consept Events. 

Í Bleika boðinu voru einnig kynningar- og sölubásar þ.á.m. voru fatahönnuðir úr Fatahönnunarfélagi Íslands með kynningar og sölu þar sem 20% af ágóða sölunnar rann til Krabbameinsfélagsins, Te og kaffi gaf konum kaffi á staðnum, snyrtivörukynningar voru frá Halldóri Jónssyni, Forvali og Kanebo, bókakynning frá Forlaginu, svo og sala til styrktar Krabbameinsfélaginu á Kærleiksklútum frá Spiral, sælgætinu „Fáðu þér gott fyrir gott“ frá FærID og slökunardiski Moniku ásamt því að Krabbameinsfélagið seldi sínar vörur. 

„Krabbameinsfélagið gæti ekki haldið Bleika boðið nema fyrir stuðning og styrki einstaklinga og fyrirtækja. Fjölmargir studdu félagið með vinnu, húsnæði, þjónustu, búnaði, húsgögnum, peningagjöfum, vöruúttektum og happdrættisvinningum,“ sagði Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Það er stórkostlegt hvað fólk er tilbúið að styðja við bakið á okkur og taka þátt í þessu með okkur og vil ég þakka þeim öllum sérstaklega vel fyrir. Við erum afar þakklát. Ég vil líka nota tækifærið og þakka þeim konum sem nutu kvöldstundarinnar með okkur fyrir komuna og vona að þær beri heilsuboðorð Krabbameinsfélagsins áfram, sagði Ragnheiður enn fremur. 

Styrktar- og stuðningsaðilar Bleika boðsins voru: Arion banki, Athygli, Atlantsolía, Álfaborg, Bananar, Bláa Lónið, Blómahönnun, Consept Events, Exton, FærID, Fræið, Garri, Grænn markaður, Guerilla Lighting, Hress, Eplið hárstofa, Eskimo Models, Fatahönnunarfélag Íslands, Förðunarfélagið, GH ljós, Happ, Háskólinn í Reykjavík, HN markaðssamskipti, Hreyfill-Bæjarleiðir, Innnes, Innrömmun Sigurjóns, Ístak, Ístex, Kanebo, Klakastyttur, Kría ehf. Laugar Spa, Leonard, Ljósmyndir og list, Lýsi, Mac, Margt smátt, Mjólkursamsalan, Nauthóll/Múlakaffi, Nýherji, Pappír, Pegasus, Prentmet, Radison Blu 1919, Reginn, Ríkisútvarpið, Roche-Icepharma, S. Ármann Magnússon, Saffran, Securitas, Subway, Sláturfélag Suðurlands, Spiral, Sölufélag garðyrkjumanna, Sýningakerfi, Te og kaffi, TVG-Zimsen, Úðafoss, Varius, Verkís og Vífilfell. Svo og fjölmargir sjálfboðaliðar sem voru Krabbameinsfélaginu innan handar. 

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn við að gera Bleika boðið að veruleika.










Skipta um leturstærð


Leit