03.09 2010

Selur boli til styrktar Krabbameinsfélaginu

M-design hefur hannað boli til styrktar Krabbameinsfélaginu og eru þeir nú til sölu í Iðu Lækjargötu og Made In Iceland, ásamt því að vera í verslun M-design í Bolholti 4. Bolirnir verðar til sölu til 6. september nk. 

Allur ágóði bolasölunnar rennur til Krabbameinsfélagsins. Ragnheiður Ragnarsdóttir hannaði bolinn og er hún einn af bakhjörlunum á bak við M-design.  Margir fjölskyldumeðlimir Ragnheiðar hafa greinst með krabbamein og vildi hún því leggja félaginu lið með því að hanna bol og gefa ágóðann til Krabbameinsfélagsins til að  unnt sé að styrkja enn frekar starf þess og rannsóknir. 

Hönnunin á bolnum er tré sem táknar lífið og mynda laufin líka fugla sem fljúga saman og er einn þeirra bleikur sem tengist bleika mánuðnum sem hefur verið tileinkaður því að auka árvekni um brjóstakrabbamein. Á bolnum er skrifað „vertu í núinu“ en Ragnheiður fékk það slagorð frá frænku sinni sem hefur barist við krabbamein, er hún var í krabbameinsmeðferðinni notaðu hún þessi orð til að hvetja sig áfram. 

Minnum á að salan er í Iðu, Lækjargötu, Made in Iceland og hjá M-design í Bolholti 4 en einnig er hægt að hafa samband við Ragnheiði Ragnarsdóttir (sales@cold.is) því unnt er að senda þá um allt land.  













Skipta um leturstærð


Leit