Krabbameinsfélag Íslands fékk nýverið 200.000 króna styrk frá Friendtex sem er stærsta heimasölufyrirtæki

sem selur tískufatnað á Norðurlöndum. Friendtex hefur stutt Krabbameinsfélagið í um 8 ár með sölu á böngsum til styrktar leitarstarfi hjá Krabbameinsfélagi Íslands.
Í vörulista fyrirtækisins segir að auk þess að gefa fólki kost á því að kaupa góðan fatnað á hagstæðu verði vilji fyrirtækið einnig styðja gott málefni sem snertir alla, baráttuna gegn krabbameini. Nánari upplýsingar um Friendtex má finna á vefsíðuni friendtex.is
Krabbameinsfélagið vill þakka Friendtex og sölufulltrúum þess sérlega vel fyrir stuðninginn.
Krabbameinsfélagið er áhugamannafélag rekið fyrir velvild almennings. Tilgangur félagsins er að styðja og efla í hvítvetna baráttuna gegn krabbameini, svo sem með fræðslu, rannsóknum, leit og styðja framfarir í meðferð krabbameina og umönnun krabbameinssjúklinga.