30.08 2010

Starfsmenn Rio Tinto Alcan hlupu fyrir Krabbameinsfélagið

Rio Tinto Alcan afhenti Krabbameinsfélaginu nýverið 100.000 krónur í styrk. Styrkurinn var veittur í tengslum
 við þátttöku starfsmanna Rio Tinto Alcan í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010. 

Fyrirtækið lagði fram 100.000 krónur fyrir hvern hlaupahóp starfsmanna. Hlaupahópurinn „Rafhlaupararnir“ hlupu fyrir Krabbameinsfélag Íslands. Tryggvi Skjaldarson meðlimur Rafhlauparana afhenti Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins,  styrkinn við athöfn í álverinu Straumsvík. 

Krabbameinsfélag Íslands vill þakka Rafhlaupurunum og Rio Tinto Alcan innilega fyrir styrkinn. 









Skipta um leturstærð


Leit