20.08 2010

Margir ætla að hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið

Hátt á annað hundrað manns sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn ætla að láta Krabbameinsfélag Íslands eða aðildarfélög þess njóta góðs af áheitum í tengslum við hlaupið. Krabbameinsfélagið hvetur sem flesta til að standa með þessum hlaupurum og heita á þá á vefnum hlaupastyrkur.is

Hér er hægt að heita á þá sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.

Hér er hægt að heita á þá sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Hafnarfjarðar.

Hér er hægt að heita á þá sem hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Suðurnesja.

Hér er hægt að heita á þá sem hlaupa til styrktar Krabbavörn Vestmannaeyjum.

Hér er hægt að heita á þá sem hlaupa til styrktar Krafti.

Gerð hafa verið sérstök merki sem hlaupararnir geta límt á boli sína. Merkin verða fgreidd í dag, föstudag, við afhendingu bols og gagna í  Baldurshaga undir stúku Laugardalsvallar, í bási Krafts.









Skipta um leturstærð


Leit