Alissa R. Vilmundardóttir lagði af stað í hjólaferð í kringum landið 9. ágúst til að kynna og styrkja Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum undir kjörorðinu “Okkar leið – allra málefni”. Ferðin hefur verið í undirbúningi síðustu sex mánuði og upphaflega voru þær tvær, en ferðafélagi Alissu hætti við ferðina og því fer hún ein um landið. Verndari söfnunarinnar er Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands.
Leiðin liggur um þjóðveg 1, suður og austur um land. Markmiðið er að ljúka hringferðinni á tíu dögum, en Alissa gefur sér fjóra aukadaga ef þess gerist þörf. Gerir hún ráð fyrir að koma til Reykjavíkur
18. ágúst og ljúka þar með ferðinni. Þó verður áfram hægt að styrkja málefnið eftir að ferðinni lýkur.
Rannsóknastofa í krabbameinsfræðum hefur fyrir löngu unnið sér sess í alþjóðlegum heimi krabbameinsfræða fyrir rannsóknir sínar og rannsóknarniðurstöður, en forstöðukonur hennar eru Helga M. Ögmundsdóttir og Jórunn Erla Eyfjörð.
Söfnunarferð Alissu kringum Ísland hefst og endar við húsnæði Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum í Læknagarði og að ferð lokinni verður athöfn þar sem Vigdís Finnbogadóttir afhendir skjal til marks um þá upphæð sem safnast hefur.
Alissa R. Vilmundardóttir býður öllum að hjóla með sér síðustu kílómetrana til Reykjavíkur, þ.e. úr Mosfellsbæ að Læknagarði og vonast til að fjölmenni taki þátt á síðustu metrunum og sýni með því stuðning sinn við krabbameinsrannsóknir á Íslandi, og njóti léttra veitinga við ferðalok.
Símalína til styrktar málefninu er
904 1339. Með því að hringja í símanúmerið leggjast sjálfkrafa 1.339 krónur á reikning verkefnisins. Þetta svarar til einnar krónu á hvern kílómetra sem hjólaður er.
Heimasíða átakins er www.facebook.com/Okkar.leid en Alissa skrifar dagbók og setur upp myndir í lok hvers dags. Það verður sömuleiðis hægt að fylgjast með ferðinni í gegnum GPS staðsetningartæki á slóðina: www.depill.is/Okkar.leid
Fréttatilkynning frá skipuleggjendum ferðarinnar.