12.08 2010

Íslendingar í fararbroddi

Dánartíðni vegna brjóstakrabbameins hefur lækkað meira á Íslandi en í öðrum löndum Evrópu á síðustu árum. Þetta kemur fram í grein sem birtist í British Medical Journal, en þar eru bornar saman breytingar frá árunum 1987-1989 til áranna 2004-2006.

Í greininni kemur fram að dánartíðnin hafi á þessu tímabili lækkað um 45% á Íslandi, um 35% í Englandi og Wales, 24% í Noregi, 21% í Danmörku, 16% í Svíþjóð og 12% í Finnlandi.

Sagt er að þennan árangur megi þakka skipulegri leit að brjóstakrabbameini með röntgenmyndatöku, nýjungum í skuðaðgerðum og geislameðferð svo og nýjum krabbameinslyfjum.

Greinin í BMJ: http://www.bmj.com/cgi/content/full/341/aug11_1/c3620

Konur eru boðaðar í brjóstamyndatöku hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins á tveggja ára fresti frá 40 ára aldri til 70 ára.









Skipta um leturstærð


Leit