Ferðin heppnaðist einstaklega vel og voru konurnar sérlega ánægðar með hana. Þær fengu leiðsögn í kastæfingum þar sem tekið var mið af líkamlegri getu hverrar og einnar, tækifæri til að veiða og skoðunarferð um svæðið. Gist var að Rauðhólum í Laxárdal og voru einnig tvær konur frá Samhjálp og hjúkrunarfræðingur frá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins með í för til leiðsagnar. Bjarni Höskuldsson var aðalleiðsögumaðurinn en í heild voru leiðsögumennirnir um fimm talsins. „Þetta var yndislegt í alla staði, frábært að fá að taka þátt í þessu verkefni. Þessi kasthreyfing er mjög góð fyrir höndina og einnig fyrir bakið“ sagði einn þátttakanda eftir ferðina og önnur sagði: „Mér finnst ég hafa dottið í lukkupott, eins og sú reynsla sem ég gekk í gegnum og var erfið að vissu marki hafi snúist uppí andhverfu sína – neikvætt orðið jákvætt“.
Verkefnið Kastað til bata er nýtt hjá Krabbameinsfélaginu og heppnaðist mjög vel miðað við ánægju þátttakanda og vill Krabbameinsfélagið þakka styrktaraðilum verkefnisins innilega fyrir því án þeirra hefði verkefnið ekki orðið að veruleika.
Styrktaraðilar verkefnisins voru: Stangaveiðifélag Reykjavíkur,Ellingsen, Veiðihornið, Flugfélag Íslands, Icelandair, Veiðihúsið Rauðhólum, Vífilfell, Heilsa, Nettó, Lýsing, Landsnet, Alþýðusamband Íslands, Brauðbær, Norðanfiskur, Atlantsolía, Fálkinn, Icepharma, Danfoss,Veritas Capital, Iceland Seafood, Bjarni Höskuldsson og félagar sem leiðbeindu um veiðisvæðið.
