16.07 2010 - Föstudagur

Maraþon - Viltu styrkja Krabbameinsfélagið

Hlauparar þurfa fyrst að skrá sig í hlaupið á www.marathon.is. Síðan er hægt að smella hér til að skrá hlaup sitt til styrktar Krabbameinsfélags Íslands.

Það geta allir heitið á þá hlaupara sem valið hafa að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Nánari upplýsingar um skráningu áheita má einnig finna hér.

Krabbameinsfélag Íslands veitir þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra margháttaða þjónustu. 

Í Ráðgjafaþjónustu félagsins er m.a. boðið upp á viðtöl, faglega þjónustu, sjálfshjálparhópa og námskeið auk margvíslegra hagnýtra upplýsinga.

Í Krabbameinsskrá eru tiltækar upplýsingar um öll krabbamein og eftir atvikum skylda sjúkdóma eða viðurkenndar forstigsbreytingar æxlisvaxtar sem greinst hafa á Íslandi frá árinu 1955. Skráin veitir einstakar og verðmætar upplýsingar um þróun og tíðni krabbameinssjúkdóma hér á landi og er mikilvægur grundvöllur krabbameinsrannsókna.

Skipulögð legháls- og brjóstakrabbameinsleit fer fram í Leitarstöðinni í Reykjavík, á heilsugæslustöðvum og sjúkrastofnunum landsins.  Þáttaskil urðu í leit að brjóstakrabbameini með tilkomu nýrrar stafrænnar tækni sem tekin var í notkun 2008.

Svæðafélög sem starfa innan Krabbameinsfélags Íslands er alls 23 með um 7400 félaga.  Á vegum Krabbameinsfélagsins starfa auk þess sjö stuðningshópar sjúklinga á landsvísu sem njóta margvíslegrar þjónustu hjá félaginu og hafa aðstöðu í húsi þess að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.

Íbúðir fyrir fólk í krabbameinsmeðferð.
Krabbameinsfélag Íslands býður krabbameinssjúkum og aðstandendum þeirra af landsbyggðinni afnot af 8 íbúðum í Reykjavík á meðan á meðferð þeirra stendur gegn vægu gjaldi.  Hægt er að leigja hverja íbúð í allt að sjö vikur.





   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit