30.06 2010

Baldur sæmdur gullmerki

Baldur F. Sigfússon læknir var í gær sæmdur gullmerki Krabbameinsfélags Íslands fyrir aldarfjórðungs starf í þágu félagsins. Hann tók þátt í undirbúningi að stofnun röntgendeildar Krabbameinsfélagsins og var yfirlæknir hennar frá 1984 til hausts 2009, þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. 

Baldur var kvaddur formlega í starfsmannahófi þar sem Kristján Sigurðsson yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins og Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands þökkuðu Baldri fyrir störf hans, ekki síst í þágu íslenskra kvenna og fjölskyldna þeirra. Ragnheiður sæmdi Baldur síðan gullmerkinu, sem aðeins fáir hafa hlotið.

Ragnheiður Haraldsdóttir og Baldur F. Sigfússon.










Skipta um leturstærð


Leit