14.06 2010

Spor þúsunda kvenna

Sautján konur úr hópi listamanna sem nú hafa stofnað samtökin Grósku með félaga úr Garðabæ og Álftanesi, unnu að þessu verki en endanlega hugmynd að verkinu fékk Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir. Aðalmarkmiðið var að láta koma skírt fram hversu gríðarlegur fjöldi kvenna það var sem tók þátt í hlaupinu og einnig að búa til listaverk þar sem allar þessar konur lögðu sitt af mörkum. Þær reyndust vera um fimmþúsund og fimmhundruð.

Þetta mun vera fjölmennasti gjörningur sem gerður hefur verið á Íslandi.

Framkvæmdin var með þeim hætti að þvert yfir Vífilstaðaveginn rétt við rásmarkið var lagt þykkt teppi, síðan tíu metra langan og tveggja metra breiðan striga og sprautuðum síðan málningu á strigann, hver með sína litatúpu. Síðan var annar strigi lagður þar ofaná og að lokum þykkt teppi yfir allt sem neglt var niður. Þá var rásmerkið gefið og yfir hlupu konur og telpur á öllum aldri hver á fætur annarri og mörkuðu spor sín á verkið.
Eftir að allar konurnar höfðu hlaupið yfir, var efra strigalaginu lyft upp í háan krana framan við turninn á Garðatorgi en neðri striginn var breiddur úr  fram á við út frá hinum en hann var nákvæm spegilmynd hins.

Þessar þúsundir kvenna sem hlupu yfir strigann bjuggu í raun til listaverkið, og hafa þar með málað með fótum sínum listaverk sem stendur um ókomna tíð.  Hinn samtaka hópur sautján listakvenna úr Garðabænum vann eins og smurð vél að þessu verki sem var svo sannarlega nokkuð flókið á þeim stutta tíma sem þær höfðum til umráða. Allt efni til verksins var lagt til af ÍSÍ.

Nú hefur önnur spegilmynd verksins verið bútuð niður í litlar myndir 40x40 og 45x45 alls 46 verk sem verða til sýnis og sölu 10.-20. júní í tengslum við Kvennahlaupið í ár á Garðatorgi
Verkin er svo hægt að merkja sér og kaupa hjá Bjargey Ingólfsdóttur í bara DESIGN og Þóru Einarsdóttur í thora ART.

Söluandvirði verkana rennur til Krabbameinsfélagsins.
 









Skipta um leturstærð


Leit