Stjórnarkonur Kvennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands afhentu átakinu MOTTUMARS sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir 500.000 krónur á dögunum.
„Þessi tillaga um styrk til handa karlmönnum með krabbamein var sannarlega afgreidd með hraða ljóssins á stjórnarfundi; einróma samþykki“, sagði formaður Kvennadeildarinnar Anna M. Pétursdóttir.
MOTTUMARS, átak gegn krabbameini í karlmönnum sló rækilega í gegn í mars s.l. þar sem Krabbameinsfélagið hvatti karlmenn til að safna mottu til að vekja athygli á málstaðnum.
Meginmarkmið Kvennadeildar R-RkÍ hefur frá upphafi verið að styðja við bakið á samfélagsþjónustu. Ennfremur að bættri læknisþjónustu við almenning með kaupum á fullkomnum tækjum til rannsókna og aðgerða.
Kvennadeild R-RkÍ rekur tvær verslanir, á Landspítala Hringbraut og Landspítala í Fossvogi .Allur ágóði rennur til kaupa á tækjum fyrir spítalana ásamt styrkveitingum til ýmissa góðgerðamála.
Kvennadeildin rekur einnig sjúklingabókasöfnin á sjúkrahúsunum.
„Við erum mjög þakklát fyrir þennan rausnarlega stuðning Rauða kross kvennanna. Það gefur okkur mikinn kraft að finna fyrir trausti þeirra. Það er líka mjög skemmtilegt að sjá hve duglega konur hafa styrkt þetta átak til að bæta heilsu karla.“, segir Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélagsins

Myndatexti:
F.V. Stjórnarkonur; Linda B. Hlynsdóttir, Aðalbjörg Gunnarsdóttir, Hildur Guðmundsdóttir, Þórdís Sigtryggsdóttir, Hólmfríður Egilsdóttir, Oddrún Kristjánsdóttir, Guðrún Jósafatsdóttir, Auður Þorgeirsdóttir, skrifstofustjóri Kvennadeildar og Anna M. Pétursdóttir, formaður Kvennadeildar R-RkÍ afhenda Ragnheiði Haraldsdóttur forstjóra Krabbameinsfélagsins styrkinn í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.