Krabbameinsfélag Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands efna til samkeppni um hönnun á bleiku slaufunni 2010, tákni Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini kvenna. Vinningshafi hlýtur verðlaun að verðmæti 500 þúsund krónur en það eru Arion banki, Leonard og Sölufélag garðyrkjumanna sem styðja við keppnina.
Frestur til að skila inn tillögum er til 18. júní 2010 og tilkynnt verður um úrslit viku síðar.
Á undanförnum árum hefur bleika slaufan þróast frá því að vera einfaldur, bleikur borði yfir í fallegan og eigulegan skartgrip og var því ákveðið að efna til samkeppni um hönnun slaufunnar í ár en meðal fulltrúa í dómnefndinni eru skartgripahönnuðirnir Hendrikka Waage og Sif Jakobs, sem hafa báðar hannað bleiku slaufuna fyrir Krabbameinsféalgið. Bleika slaufan verður fjöldaframleidd og seld til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Verkefnið
Að hanna fallega og eigulega bleika slaufu sem seld verður til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
Með þátttöku samþykkir keppandinn að gripurinn verði eign Krabbameinsfélags Íslands. Hann verður fjöldaframleiddur og seldur til fjáröflunar fyrir félagið og ráðstafað á þann hátt er félagið kýs best.
Verðlaun
Verðlaunahafi hlýtur verðlaun að verðmæti 500.000 kr.
Fyrir hverja
Keppnin er öllum opin
Framleiðsla og sala
Bleika slaufan þarf að vera auðveld og tiltölulega ódýr í framleiðslu. Krabbameinsfélag Íslands sér um framleiðslu og sölu á bleiku slaufunni. Allur ágóði af sölu slaufunnar rennur til styrktar félaginu.
Umsóknarferli
Tillögum skal skila í lokuðu umslagi merktu dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands, Vonarstræti 4b, 101 Reykjavík, fyrir kl. 12.00, föstudaginn 18. júní 2010.
Í umslaginu skal vera annað lokað umslag merkt dulnefni og inni í því þarf rétt nafn hönnuðar, heimilisfang og sími að koma fram. Tillögum skal skila útprentuðum á A4 blaði í lit (hámark 3 síður) / eða sem prótótýpum. Tillögur skulu einnig fylgja með á diski sem pdf skjöl.
Úrslit keppninnar
Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt fimmtudaginn 24. júní og samtímis fer fram sýning á völdum tillögum.
Í dómnefnd sitja: Hendrikka Waage, skargripahönnuður.
Sif Jakobs, skartgripahönnuður.
Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður.
Kristín Birna Bjarnadóttir, vöruhönnuður.
Nánari upplýsingar:
Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands /662 4156 / gustaf@krabb.is
Halla Helgadóttir, framvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands /699 3600 / halla@honnunarmidstod.is
eða á Netinu á
www.honnunarmidstod.is og www.krabb.is