17.03 2010

Milljón flettingar á karlmennogkrabbamein.is

Aðsókn á vefinn karlmennogkrabbamein.is hefur farið fram úr allra björtustu vonum. Umferðin um vefinn var svo mikil um helgina að flytja þurfti hann yfir á annan vefþjón sem hentar betur stærri vefjum.

„Aðsóknin hefur verið hreint ótrúleg og í síðustu viku komu yfir 64.000 manns inn á síðuna. Frá upphafi hefur síðunni verið flett nálægt milljón sinnum en um 2.000 einstaklingar og 384 lið hafa skráð sig á síðuna og hlaðið inn fjölda skemmtilegra mynda,“ segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Það er mikill og skemmtilegur keppnisandi á mottuvefnum eins og merkja má af þeim 11,5 milljónum króna sem hafa þegar safnast í áheitum.“

Það er TM Software sem hefur átt veg og vanda að smíði vefjarins. „Þetta hefur verið skemmtilegt verkefni en það átti enginn von á þessum gríðarlegu vinsældum,“ segir Brynjar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá TM Software. „Vefurinn var upphaflega hýstur á vefþjóni sem hentar betur smærri vefjum en við höfum nú komið vefnum fyrir á stærri vefþjón sem nær að anna þessu mikla álagi og vonumst til að vinsældir síðunnar haldi áfram að vaxa,“ segir Brynjar og nefnir sem dæmi að í síðustu viku einni saman hafi verið yfir hálf milljón flettinga á vefnum karmennogkrabbamein.is.

„Ef miðað er við samræmda vefmælingu Modernus myndi vefurinn nú skila sér í 10. sæti hvað vinsældir varðar og það verður að teljast nokkuð gott fyrir vef af þessu tagi!“








Skipta um leturstærð


Leit