Helga Berglind Atladóttir átti erfitt með að trúa eigin augum þegar hún kannaði vinningskrána í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins, en síðan fékk hún staðfest að hún hefði unnið fyrsta vinning, Chervolet Cruze bifreið frá Bílabúð Benna, að andvirði um 3,6 milljónir króna. Þetta var einn af 163 skattfrjálsum vinningum í happdrættinu. Bifreiðin var formlega afhent í síðustu viku.
Happdrætti Krabbameinsfélagsins hefur verið ein helsta tekjulind samtakanna og stuðlað að uppbyggingu þeirra og þróun. Sem dæmi má nefna að fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir byggist að miklu leyti á happdrættisfé og má segja að happdrættið eigi sinn þátt í þeim mikla árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum síðustu áratugi.
Krabbameinsfélagið vill þakka landsmönnum fyrir góðan stuðning í jólahappdrættinu, óskar vinningshöfum innilega til hamingju með vinningana og Bílabúð Benna fyrir mjög gott samstarf. Vinningaskráin er
hér.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Vinningshafinn Helga Berglind Atladóttir og eiginmaður hennar Ólafur Már Bjarnason, Guðlaug B. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Benedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna.