15.01 2010 - Föstudagur

Dexter með krabbamein

Leikarinn Michael C. Hall, sem þekktastur er fyrir hlutverk fjöldamorðingjans Dexter í samnefndum þáttum, hefur tilkynnt að hann hafi barist við krabbamein að undanförnu en sé nú að ljúka meðferð. Hann greindist með eitlakrabbamein (Hodgkin's lymphona) fyrir nokkru síðan en meðferðin virðist bera góðan árangur.

,,Mér finnst ég vera heppinn að hafa greinst með krabbamein sem bregst svo vel við meðferð og ég þakka læknum mínum og hjúkrunarfræðingum fyrir sérþekkingu þeirra og umhyggju,"sagði hinnn 38 ára gamli leikari.





   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit