12.01 2010 - Þriðjudagur

Tónlistarfólk styður krabbameinsveik börn

Margar vinsælar hljómsveitir og þekktir listamenn koma fram á tónleikum til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna sem haldnir verða í Háskólabíói næstkomandi laugardag.

Í dag kynnti Einar Bárðarson hjá Concert hverjir koma fram. Það eru Sálin hans Jóns míns, Ingó og Veðurguðirnir, Stórsveitin Buff, Hvanndalsbræður, Hafdís Huld, Friðrik Ómar og Jógvan, Jóhanna Guðrún, Skítamórall, Dikta, Íslenska sveitin, Ragnheiður Gröndal, Bollywoodshow Yesmine og Geir Ólafsson.

Tónleikar af þessu tagi hafa verið haldnir árlega í rúm tíu ár. Skipuleggjendur taka fram að allir listamenn og tæknimenn gefi alla vinnu sína.

Tónleikarnar verða í Háskólabíói næstkomandi laugardag og hefjast klukkan 16.

Tekið af mbl.is






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit