Kanadíska söngkonan Lhasa de Sela lést af völdum brjóstakrabbameins á heimili sínu í Montréal í Kanada á nýársdag 37 ára að aldri. Síðustu tónleikar Lhasa voru á Listahátíð í Reykjavík í fyrra. Þetta kom fram á fréttamiðlinum
Vísir.is í dag.
Lhasa var af mexíkósku og bandarísku bergi brotin, en bjó lengst af í Frakklandi og Québec í Kanada.
Hún hafði barist við krabbameinið í tæp tvö ár og var því veik þegar hún kom fram á sínum allra síðustu tónleikum í Reykjavík en í kjölfar þeirra tónleika aflýsti hún fyrirhugaðri tónleikaferð sinni um Evrópu.