Stjórn Kristínarsjóðs, minningarsjóðs í vörslu Krabbameinsfélags Íslands, hefur ákveðið að gefa Barnaspítala Hringsins veglega jólagjöf; sex sjónvarpsflatskjái ásamt DVD spilurum og Playstation leikjatölvum að andvirði um ein milljón króna, í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu Kristínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna, sem lagði sjóðnum til fjármagn. Kristínarsjóður styður við rannsóknir á krabbameinum í börnum sem og aðhlynningu krabbameinssjúkra barna. „Sjóðurinn hefur styrkt vel á þriðja tug fjölbreyttra verkefna frá stofnun hans árið 1997, bæði til vísindastarfa og annarra verkefna sem koma krabbameinsveikum börnum til góða,“ segir Jakob Jóhannsson læknir sem situr í stjórn sjóðsins.
Gjöf sem nýtist mörgum
Minningargjöfin er veitt dagdeild Barnaspítala Hringsins en þar koma meðal annars krabbameinsveik börn til lyfjagjafar. „Þessi gjöf á eftir að nýtast öllum þeim börnum sem þurfa að sækja þjónustu til dagdeildarinnar sem og systkinum, aðstandendum og vinum sem í heimsókn koma,“ segir Sigrún Þóroddsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins. „Við munum setja upp sjónvarp í hverri stofu sem telur tvö rúm eða fleiri og ég er viss um að þetta muni létta lund og stytta bið þeirra barna sem þurfa að leita til okkar.“
Merkilegt líf Kristínar
Kristín Björnsdóttir arfleiddi Krabbameinsfélag Íslands að helmingi eigna sinna þegar hún lést árið 1994 og var í framhaldinu stofnaður Sjóður Kristínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna.
„Líf Kristínar var afar merkilegt og viljum við minnast hennar með því að veita sérstaklega vel úr sjóðnum í ár í tilefni þess að 100 ár eru frá fæðingu hennar,“ segir Jakob. Árið 1937 fluttist Kristín til útlanda og dvaldist m.a. í Frakklandi og á Ítalíu. „Þar kynntist hún ýmsum frammámönnum og var um tíma málakennari dóttur Mussolini. Á stríðsárunum kynntist Kristín mörgum háttsettum Þjóðverjum sem vildu fá hana til að njósna fyrir nasista. Þegar hún neitaði var hún send í fangabúðir þar sem hún dvaldi við illan aðbúnað í þrjú ár með öðrum pólitískum föngum. Eftir að bandamenn frelsuðu Evrópu starfaði hún sem túlkur fyrir Rauða krossinn og flutti síðan til Bandaríkjanna. Þar gekk hún í skóla stórfyrirtækisins IBM og vann síðan fyrir Sameinuðu þjóðirnar í 23 ár. Það kom í hennar hlut að draga íslenska fánann að hún í fyrsta skipti þegar Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum. Við starfslok árið 1969 flutti Kristín aftur til Íslands. Hún lést úr krabbameini árið 1994.“

Jakob Jóhannsson og Sigrún Þóroddsdóttir ásamt skjólstæðingum Barnaspítala Hringsins.