Árleg samverustund starfsfólks, stjórnar og heiðursráðs Krabbameinsfélagsins var haldin 15.
desember sl. með jólatónlist, heitu súkkulaði og jólabrauði. Venja er að veita starfsfólki þá viðurkenningar fyrir áfanga í starfi en starfsmannavelta hjá félaginu er mjög lítil.
Að þessu sinni voru fimm sem höfðu starfað í tíu ár, ein í fimmtán ár, ein í tuttugu ár, þrjú í 25 ár og þrjár í 30 ár. Eru þeim öllum svo og öðru starfsfólki þökkuð farsæl störf í þágu félagsins. Bókaútgáfan Opna styrkti félagið við tilefnið með því að gefa bókina Jöklar á Íslandi, eftir Helga Björnsson og auk þess voru gefin myndverk og jólaskreytingar.

F.v. Sigurjón Guðmundsson (25 ár), Hrafnhildur Óttarsdóttir (20 ár), Einar Hjaltason (10 ár), Hafdís Hafsteinsdóttir (10 ár), Þórhalla Gísladóttir (25 ár), Steinunn Friðriksdóttir (15 ár), Kolbrún Gunnarsdóttir (30 ár) og Jóna Birna Guðmannsdóttir (10 ár). Auk þess fengu viðurkenningu Baldur F. Sigfússon (25 ár), Guðný Kristjánsdóttir (30 ár) og Rakel Kristjánsdóttir (30 ár).