Í október var tilkynnt að leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum fyrir íbúa Hveragerðis og Selfoss væri frestað um óákveðinn tíma. „Árlegri krabbameinsleit á Selfossi varð að fresta vegna opnunar inflúensumótttöku vegna inflúensufaraldurs og fjölda inflúensubólusetninga,“ segir Anna María Snorradóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og bætir við að gífurlegt álag hafi verið á starfsfólki heilsugæslustöðvarinnar að undanförnu og öll venjubundin starfsemi raskast. Aðrar leitarstöðvar innan HSU gátu þó haldi sínu striki samkvæmt áætlun.
Leit í Hveragerði og á Selfossi sameinuð
Eins og tilkynnt var um í haust verður leit í Hveragerði og Selfossi sameinuð, og fer leitin fram í Heilsugæslustöð Selfoss 15.-23. febrúar næstkomandi. Krabbameinsfélag Íslands hefur í fjölda ára leitast við að auðvelda öllum konum að mæta reglulega í leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum, óháð búsetu. Vegna erfiðs efnahagsástands hefur félagið þó þurft að grípa til ýmissa hagræðinga í rekstri, en þar á meðal er að fækka skoðunarstöðum úti á landi úr 42 í 30.
„Þrátt fyrir óhjákvæmilegan niðurskurð höfum við lagt okkur fram við að skerða sem minnst þá góðu þjónustu sem Krabbameinsfélagið hefur veitt skjólstæðingum sínum,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands og bætir við að ástæðan að baki fækkunar skoðunarstöðva sé einnig sú að ný og betri leitartæki séu afar viðkvæm fyrir flutningi og hitastigsbreytingum og því nauðsynlegt að draga sem mest úr flutningi þeirra. Hún vonar að konur virði nauðsyn Krabbameinsfélagsins til að hagræða og láti ekki þessa sameiningu skoðunarstaða aftra sér frá því að mæta í mikilvæga skoðun.
Konur eru hvattar til að panta sér tíma í heilsugæslu á viðkomandi stað þegar boðunarbréf berst.