03.12 2009

Ragnheiður Haraldsdóttir nýr forstjóri Krabbameinsfélags Íslands

Ragnheiður Haraldsdóttir tekur við af Guðrúnu Agnarsdóttur sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands eftir áramótin og lætur þá jafnframt af störfum sem sviðsstjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í heilbrigðisráðuneytinu.

„Starf forstjóra Krabbameinsfélags Íslands  er bæði margþætt og mikilvægt og félagið er í fararbroddi baráttunnar gegn krabbameini hér á landi,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins. „Ragnheiður er traustur og öflugur leiðtogi með mikla reynslu af stjórnun og störfum á heilbrigðissviði. Fyrir utan fjölþætta starfsreynslu hefur hún einnig umtalsverða menntun á sviði stjórnunar og heilbrigðismála, auk þess sem framtíðarsýn hennar fellur vel að þeirri stefnumörkun sem félagið hefur verið að móta að undanförnu.“

Með áratuga reynslu á sviði heilbrigðismála
Ragnheiður Haraldsdóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands og er með MSc gráðu frá Háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum og meistaragráðu í stjórnun á heilbrigðissviði frá McGill háskólanum í Kanada. Hún var aðstoðarhjúkrunarforstjóri og fræðslustjóri á hjúkrunarsviðs Landspítalans frá 1987-1994 en hefur síðan starfað í heilbrigðisráðuneytinu, nú síðast sem sviðsstjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála. 

   „Ég er reiðubúin að takast á við þær áskoranir sem felast í starfi forstjóra Krabbameinsfélagsins og tel mikilvægt að halda áfram af fullum krafti því góða starfi sem Krabbameinsfélag Íslands hefur sinnt þó nú hafi harðnað á dalnum um sinn. Baráttan gegn krabbameini er krefjandi og erfið, framundan eru miklar áskoranir  vegna þjóðfélagsástandsins  en ég lít þó fyrst og fremst á þær sem hvatningu til að takast á við verkefnin af fullum krafti,“ segir Ragnheiður.

Mynd: Ragnheiður Haraldsdóttir

Krabbameinsfélag Íslands á tímamótum
Guðrún Agnarsdóttir lætur af störfum sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands að eigin ósk en hún hefur verið forstjóri Krabbameinsfélagsins frá árinu 1992, eða í 17 ár, en þar á undan átti hún sæti í framkvæmdastjórn Krabbameinsfélagsins í fjögur ár, frá 1988 til 1992.
„Það hafa verið forréttindi að fá að vinna að þessum góða málstað en nú er tímabært að huga að starfslokum," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins. „Ég óska Ragnheiði velfarnaðar í starfi og tel hana sérlega hæfa til að takast á við þau verkefni sem fyrir liggja.“

Krabbameinsfélagið stendur á vissum tímamótum um þessar mundir, en að undanförnu hefur félagið verið að leggja lokahönd á nýja stefnumótun félagsins sem kynnt verður á næstunni.  Guðrún segir fara vel á því að nýr forstjóri taki að sér að framkvæma og leiða það umfangsmikla starf sem er framundan. „Við höfum náð miklum árangri á þeim rúmu tveimur áratugum sem ég hef tekið þátt í starfi Krabbameinsfélagsins og það er einlæg ósk mín að félagið megi áfram vaxa og dafna, þjóðinni til heilla."









Skipta um leturstærð


Leit