Háskólaútgáfan hefur gefið úr bókina Krabbamein í blöðruhálskirtli. Bókin er upphaflega sænsk en læknarnir Snorri Ingimarsson og Eiríkur Jónsson þýddu hana og staðfærðu. Bókin er ætluð sjúklingum og aðstandendum sem stuðningur og veganesti í nýjum veruleika.
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbameinið á Íslandi, en ár hvert greinast um 200 manns. Lætur nærri að einn af hverjum sjö körlum geti átt von á að greinast með þennan sjúkdóm einhvern tíma á lífsleiðinni.
Hver hinna fjórtán kafla bókarinnar fjallar um ákveðin sjónarhorn á krabbameinið allt frá spurningunum um hvað krabbamein sé, hvernig sjúkdómurinn greinist, gildi PSA-blóðprufu, meðferð sjúkdómsins, batahorfur, eftirfylgd sjúklingsins, líf og dauða í skugga sjúkdómsins og hlutskipti aðstandenda. Í bókinni er fjallað um flókinn sjúkdóm á auðskilinn hátt og bókartexti er styrktur með fjölda skýringarmynda.
Bókin er hluti ritraðar um ýmsar tegundir krabbameina, sem Karolinska Institutet University Press AB í Svíþjóð stendur að í samvinnu við lækna Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi og aðra sérfræðinga á þessu sviði.